Landsvirkjun

Dótturfyrirtæki og félög

Landsvirkjun á sex dótturfélög, ýmist að hluta eða öllu leyti. Um er að ræða fyrirtæki sem tengjast kjarnastarfsemi fyrirtækisins en í öllum tilvikum sérhæfa þau sig í afleiddum þáttum orkuframleiðslu, svo sem flutningi á raforku og stjórnun raforkukerfis, þátttöku í erlendum orkuverkefnum, fjarskiptaþjónustu, orkurannsóknum og tryggingum aflstöðva.

Dótturfélög

Orkufjarskipti hf.

www.orkufjarskipti.is

Í árslok 2011 tóku Orkufjarskipti hf. við starfsemi Fjarska ehf. sem var stofnaður árið 2000 þegar félagið yfirtók fjarskiptakerfi sem Landsvirkjun rak áður til fjarstýringar á virkjunum og flutningskerfi. Í árslok 2011 var ákveðið að Landsnet hf. kæmi inn í Fjarska ehf. með sínar fjarskiptaeignir og að eignarhlutföll Landsvirkjunar og Landsnets hf. yrðu jöfn í félaginu, 50% hjá hvoru fyrirtæki. Samhliða var einkahlutafélaginu breytt í hlutafélag, nafni félagsins breytt í Orkufjarskipti hf., hlutafé aukið og ný stjórn kjörin.

Landsnet

www.landsnet.is

Landsnet hf. var stofnað á grundvelli raforkulaga sem samþykkt voru á Alþingi á vormánuðum 2005. Hlutverk fyrirtækisins er að annast flutning raforku og stjórnun raforkukerfisins. Landsnet starfar samkvæmt sérleyfi og er háð eftirliti Orkustofnunar sem ákvarðar tekjurammann sem gjaldskrá fyrirtækisins miðast við. Landsvirkjun á um 64,7% hlut í fyrirtækinu en önnur orkufyrirtæki eiga afganginn.

Landsvirkjun Power

www.lvpower.is

Landsvirkjun Power ehf. hóf starfsemi í ársbyrjun 2008 en hlutverk þess er að nýta þekkingu Landsvirkjunar til að vinna að ráðgjafarverkefnum í orkumálum á alþjóðavettvangi. Landsvirkjun Power ehf. er að fullu í eigu Landsvirkjunar.

Icelandic Power Insurance

Tilgangur Icelandic Power Insurance er að annast tryggingar og endurtryggingar á aflstöðvum Landsvirkjunar auk þess að hafa umsjón með framkvæmdatryggingum á verktíma.

Hraunaveita ehf.

Fyrirtækið tók við tilteknum verkefnum vegna Kárahnjúkavirkjunar en stundar ekki neina starfsemi nú. Félagið er í fullri eigu Landsvirkjunar.

Önnur félög

Önnur félög

Landsvirkjun tengist jafnframt neðantöldum fyrirtækjum sem minnihlutahluthafi.

Baðfélag Mývatnssveitar

www.jardbodin.is

Baðfélag Mývatnssveitar hf. Landsvirkjun fer með 15,1% af hlutafé í baðfélaginu í árslok 2011.

DMM lausnir

www.dmm.is

DMM lausnir ehf. er hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu upplýsinga- kerfanna DMM og Inspector.is og ráðgjöf í tengslum við notkun kerfanna hjá viðskiptavinum. Landsvirkjun fer með 16,6% hlut í félaginu.

Neyðarlínan

www.112.is

Neyðarlínan ohf. sér um rekstur neyðarnúmersins 112. Neyðarlínan sér einnig um rekstur Vaktstöðvar siglinga og fjarskiptastöðvarinnar í Gufunesi. Neyðarlínan á og rekur fjarskiptafyrirtækið Tetra Ísland. Landsvirkjun fer með 8% hlut í félaginu.

NýOrka

www.newenergy.is

NýOrka hf. er samvinnuvettvangur orkufyrirtækja og rannsóknastofnana. Leiðarljós NýOrku er að standa fyrir verkefnum til að prófa visthæft eldsneyti og stuðla að notkun þess í íslensku samfélagi. Landsvirkjun fer með 12% hlut í félaginu.

Netorka

www.netorka.is

Netorka hf. er sameiginlegt mæligagna- og uppgjörsfyrirtæki sem þjónar íslenskum raforkumarkaði. Netorka annast uppgjör og vinnslu sölumælinga og heldur utan um breytingar á viðskiptum raforkuseljenda og kaupenda. Landsvirkjun fer með 3,8% hlut í félaginu.

Farice

www.farice.is

Farice ehf. var stofnað í september 2002 í þeim tilgangi að reka sæstrengina FARICE og Danice. Landsvirkjun fer með 28,9% hlut í félaginu.

Íslensk orka

Íslensk orka ehf. stundar starfsemi er tengist orkuöflun og nýtingu hennar. Landsvirkjun fer með 27,2% hlut í félaginu.