Ársskýrsla Landsvirkjunar 2011
Árið 2011 var gott ár fyrir Landsvirkjun. Fjárhagsstaða fyrirtækisins hefur batnað frá árinu 2010 einkum vegna tekjuaukningar, sem rekja má til breytinga á samningum um raforkuverð og hækkandi álverðs.
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2010
Árið 2010 var viðburðaríkt hjá Landsvirkjun og afkoma ársins góð. Undirritaður var nýr raforkusamningur við Alcan á Íslandi á árinu og hafist var handa við byggingu Búðarhálsvirkjunar. Rekstrartekjur jukust um rúm 10% á milli ára og hagnaður eftir skatta nam 72,9 milljónum USD.
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2009
Hagnaður Landsvirkjunarsamstæðunnar nam 193 milljónum Bandaríkjadala (USD) á árinu 2009, þrátt fyrir erfitt rekstrarumhverfi. Handbært fé frá rekstri var 197 milljónir USD.
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2008
Um miðjan febrúar afhenti Landsvirkjun Reykjavíkurborg varastöðina í Elliðaárdal ásamt landi til eignar. Varastöðin var hluti af stofnframlagi Reykjavíkurborgar til Landsvirkjunar árið 1965.
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2007
Landsvirkjun hefur þróað forritið GB fyrir grænt bókhald. Forritið fæst endurgjaldslaust hjá Landsvirkjun og er ætlað öllum fyrirtækjum sem hafa áhuga á að fylgjast með tölulegum upplýsingum um umhverfisáhrif af starfsemi sinni.
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2006
Landsvirkjun hefur þróað forrit sem fengið hefur nafnið Grænt bókhald. Forritið er ætlað öllum fyrirtækjum sem hafa áhuga á að fylgjast með
tölulegum uppl‡singum um umhverfisáhrif af starfsemi sinni. Grænt bókhald er opinn hugbúnaður sem þ‡ðir að hverjum sem er, er frjálst
að bæta við virkni hans og aðlaga forritið að eigin þörfum.
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2005
Bygging Kárahnjúkavirkjunar er mikil framkvæmd. Landsvirkjun gekkst fyrir samkeppni um kvikmyndun á meðan á bygginu virkjunarinnar stendur þar sem markmiðið er að varðveita heimildir um þetta mikla starf og einnig að búa efni í hendur almennings á meðan á framkvæmdum standi svo að hægt verði að fylgjast með framgangi þeirra.
Ársskýrlsa Landsvirkjunar 2004
Landsvirkjun leggur lið samfélagsmálefnum sem efla hag þeirra svæða þar sem fyrirtækið starfar. Fyrirtækið leggur áherslu á að bæta innviði ferðamennsku og útivistar á virkjunarsvæðum og vill efla ferðaþjónustu þar, m.a. með því að halda sýningar og aðra viðburði í starfsstöðvum Landsvirkjunar.
Ársskýrlsa Landsvirkjunar 2003
Í lok janúar úrskurðaði settur umhverfisráðherra um umhverfisáhrif Norðlingaöldulóns og heimilaði það í verulega breyttri mynd. Í byrjun september ákvað stjórn Landsvirkjunar svo að fresta ákvörðun um byggingu Norðlingaölduveitu og draga Landsvirkjun út úr samningum um orkusölu til næsta stækkunaráfanga álvers Norðuráls.
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2002
Landsvirkjun reisti háspennumastur á Arnarhóli í tilefni af Vetrarhátíð í Reykjavík, „Ljós í myrkri“, sem haldin var 26. febrúar til 3. mars. Í Stjórnstöð Landsvirkjunar var haldin sýning Þjóðminjasafnsins á ljósfærum í gegnum aldirnar.
Ársskýrsla Landsvirkjunar 2001
Góður vatnsbúskapur var bæði vor og haust og veitti Landsvirkjun afslátt af verði á umframafli til rafveitna í upphafi og lok ársins.
Föstudaginn 9. febrúar undirritaði Landsvirkjun samning við Alstom, Frakklandi, um kaup og uppsetningu á nýju orkustjórnkerfi.