Landsvirkjun

Landsvirkjun semur um sambankalán í íslenskum krónum

30. desember 2011

Lánið er veltilán og getur fyrirtækið dregið á lánið og endurgreitt eftir þörfum.  Lánið er með framlengingarheimild til tveggja ára og getur lánstími því að hámarki orðið fimm ár.

Um lántökuna sáu Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn.

Sambankalánið er viðbót við annað sambankalán að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala sem tilkynnt var um þann 27. desember síðastliðinn.  Markmið lántakanna er að Landsvirkjun hafi ávallt tryggan aðgang að fyrirvaralausri fjármögnun ef hefðbundnar fjármögnunarleiðir lokast tímabundið.  Með lántökunum hefur Landsvirkjun þannig samtals tryggt sér fjármögnun að jafnvirði um 35 milljarða króna til allt að 5 ára.

 

Fréttayfirlit Prenta síðu

Fjölmiðlatorg

Fjölmiðlatorg Landsvirkjunar

Fjölmiðlatorgið hefur að geyma allt útgefið efni fyrirtækisins fyrir fjölmiðla, ljósmyndir og merki fyrirtækisins. Einnig er þar að finna gott fréttasafn sem nær aftur til ársinns 1999.

RSS áskrift

RSS straumar Landsvirkjunar

Í RSS efnisstraumum er að finna nýjasta efni sem birst hefur á vefjum. Notendur geta safnað veitum í lesara og þannig fylgst með öllu nýju efni.