Ársreikningur Landsvirkjunar fyrir árið 2011 birtur í dag
16. mars 2012
Helstu atriði ársreiknings:
- Rekstrartekjur námu 436,2 milljónum USD (55,4 ma.kr.) sem er 15,5% aukning frá árinu áður.1
- EBITDA nam 345,2 milljónum USD (43,8 ma.kr.). EBITDA hlutfall er 79,1% af tekjum, en var 78,9% árið 2010.
- Handbært fé frá rekstri nam 267,2 milljónum USD (33,9 ma.kr.) sem er 16,4% aukning frá árinu 2010.
- Hagnaður eftir skatta nam 26,5 milljónum USD (3,4 ma.kr.), en var 72,9 milljónir USD árið áður.
- Lausafjárstaða Landsvirkjunar er sterk og hafði fyrirtækið í árslok aðgang að 645,7 milljónum USD (82 ma.kr.). Sterk lausafjárstaða tryggir getu fyrirtækisins til að standa straum af afborgunum lána á næstu árum.
- Nettó skuldir lækkuðu á árinu um 171 milljón USD (21,7 ma.kr.) og voru í árslok 2.503 milljónir USD (317,9 ma.kr)
- Stjórn félagsins mun á aðalfundi gera tillögu um arðgreiðslu til eigenda að fjárhæð 1,8 milljarðar króna (14,2 milljónir USD) fyrir árið 2011.
Hörður Arnarson, forstjóri:
Fjárhagsstaða fyrirtækisins á árinu 2011 batnaði nokkuð frá fyrra ári einkum vegna tekjuaukningar, sem rekja má til breytinga á samningum um raforkuverð og hækkandi álverðs.
Lækkun skulda og bætt sjóðstreymi á árinu valda því að lykilmælikvarðar um fjárhagslegan styrk fyrirtækisins þróast í rétta átt þótt enn vanti upp á að fyrirtækið standist samanburð við erlend raforkufyrirtæki og kröfur erlendra matsfyrirtækja. Mikilvægt er því að bæta þessar kennitölur enn frekar á næstu árum.
Framkvæmdir við Búðarháls eru nú í fullum gangi og gert er ráð fyrir að virkjunin taki til starfa í árslok 2013. Næstu verkefni fyrirtækisins verða síðan á Norðausturlandi þar sem í ár er unnið að umfangsmiklum undirbúningi við hönnun virkjana í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum.
Fyrirtækið mætir áfram áhuga viðskiptavina, nýrra jafnt sem eldri, á kaupum á raforku en gera má ráð fyrir að aðstæður í efnahagsmálum heimsins ráði miklu um hvenær samningar takist.“
Fréttatilkynning - lykiltölur úr rekstri 2011
Ársreikningur Landsvirkjunar 2011
Fréttayfirlit
Prenta síðu