Ný gestastofa í Kröflustöð
18. júní 2012
Fjöldi fólks kynnir sér endurnýjanlega orkugjafa ár hvert
Fjöldi fólks sækir Landsvirkjun heim ár hvert en sumarið 2011 heimsóttu rúmlega 19.000 manns gestastofur Landsvirkjunar og kynntu sér endurnýjanlega orkugjafa á orkusýningum í aflstöðvum fyrirtækisins. Landsvirkjun er með opnar gestastofur í Kröflustöð á Norðausturlandi, í Végarði hjá Fljótsdalsstöð á Austurlandi og í Búrfellsstöð á Suðurlandi. Sumarið 2012 verður einnig opið í Ljósafossstöð en þar munu Skátarnir setja upp sýningu í tilefni 100 ára afmælis skátastarfs á Íslandi.
Einar Mathiesen, framkvæmdastjóri orkusviðs opnar nýja sýning í Kröflustöð
Orka í iðrum jarðar
Ný gestastofa í Kröflustöð opnaði með viðhöfn fimmtudaginn 14. júní. Einar Mathiesen, framkvæmdastjóri orkusviðs, opnaði sýninguna en um 70 manns voru viðstaddir opnunina. Í Kröflustöð er fjölsóttasta gestastofa Landsvirkjunar en tæplega 8.000 manns sóttu stöðina heim árið 2011 og var því á síðasta ári ákveðið að ráðast í endurbætur á sýningunni fyrir sumarið 2012.
Sýningin í Kröflustöð varpar ljósi á þá krafta sem búa í iðrum jarðar og hvernig vinna má raforku úr jarðvarma. Boðið er upp á fræðslu um endurnýjanlega orkugjafa sem og merkilega sögu Kröflustöðvar þar sem eldgos og beislun orkunnar fóru fram á sama tíma. Sýningin var hönnuð af Gagarín, í samvinnu við Landsvirkjun. Einnig var endurgerð kvikmynd um Kröfluelda eftir nýju handriti Ara Trausta Guðmundssonar.
Opið er alla daga vikunnar í júní, júlí og ágúst en nánar um sýningar og opnunartíma hverrar stöðvar má lesa á gestir.landsvirkjun.is

Gestir kynna sér nýju orkusýninguna í Kröflustöð
Fréttayfirlit
Prenta síðu