Landsvirkjun

Að koma hlutum á hreyfingu

22. júní 2009

Rafmótorar eru mjög líkir rafölum sem búa til rafmagnið í orkuverum. Í stað þess að nota hreyfiorku til að búa til rafmagn er rafmagnið notað til þess að búa til hreyfingu. Í báðum tilvikum eru það seglar og rafmagnsvír sem notað er. Með því að senda rafstraum um rafmagnsvírinn umhverfis seglana er hægt að fá rafmótorinn til þess að snúast. Í sumum mótorum eru seglarnir fastir, en í öðrum snúast þeir. 

Ísskápur er dæmi um raftæki sem notar rafmagnsmótor. Hann gegnir því hlutverki að knýja þjöppu. Við þéttingu á loftinu í þjöppunni hitnar það. Lofttegundir í leiðslunum aftan á ísskápnum eru þéttar með hjálp þjöppunnar. Síðan er lofttegundirnar látnar kólna og breytast í vökva. Þrýsingurinn á vökvnum er lækkaður áður en hann fer í leiðslurnar inni í kæliskápnum. Vökvinn dregur í sig hita og við það breytist hann aftur í lofttegundir. Þær eru síðan leiddar að þjöppunni þar sem hringrásin hefst á nýjan leik.

Ýmis iðnaðarframleiðsla er nær óhugsandi án rafmótora af ýmsu tagi. Það má segja að þeir snúi hjólum atvinnulífsins og létti okkur um leið lífið. Þvottavélar, ryksugur, þurrkarar og hrærivélar eru dæmi um slíkt.

Fréttayfirlit Prenta síðu

Fjölmiðlatorg

Fjölmiðlatorg Landsvirkjunar

Fjölmiðlatorgið hefur að geyma allt útgefið efni fyrirtækisins fyrir fjölmiðla, ljósmyndir og merki fyrirtækisins. Einnig er þar að finna gott fréttasafn sem nær aftur til ársinns 1999.

RSS áskrift

RSS straumar Landsvirkjunar

Í RSS efnisstraumum er að finna nýjasta efni sem birst hefur á vefjum. Notendur geta safnað veitum í lesara og þannig fylgst með öllu nýju efni.