Landsvirkjun

Raflýsing

22. júní 2009

Enn eru glóðarperurnar mikið notaðar til lýsingar. Inni í þeim er málmþráður sem lýsir þegar rafstraumi er hleypt á peruna. Peran kallast glóðarpera vegna þess að málmþráðurinn sem oftast er gerður úr efni sem nefnist Wolfram, glóir af hita. Glóðin og hitinn stafar af því að málmurinn hefur mikið viðnám og hleypir rafeindunum ekki öllum í gegnum sig. Hitinn getur náð 2.600 gráðum á Celsius.

Glóðarperur innihalda lofttegund sem nefnist argon sem hindrar að málmþráðurinn brenni inni í prerunni. Smám saman þynnist þráðurinn í glóðarperum og eftir 800 til 1.000 klukkustunda notkun slitnar hann og peran „springur“.

Það er líka hægt að búa til ljós með því að hleypa rafstraumi í gegnum ýmsar lofttegundir. Lofttegundirnar eru lokaðar inni í glerrörum sem við þekkjum undir heitinu flúrperur. Rafeindirnar í lofttegundunum eru örvaðar við það að straumi er hleypt á og við það lýsa þær.

Fréttayfirlit Prenta síðu

Fjölmiðlatorg

Fjölmiðlatorg Landsvirkjunar

Fjölmiðlatorgið hefur að geyma allt útgefið efni fyrirtækisins fyrir fjölmiðla, ljósmyndir og merki fyrirtækisins. Einnig er þar að finna gott fréttasafn sem nær aftur til ársinns 1999.

RSS áskrift

RSS straumar Landsvirkjunar

Í RSS efnisstraumum er að finna nýjasta efni sem birst hefur á vefjum. Notendur geta safnað veitum í lesara og þannig fylgst með öllu nýju efni.