Fljótsdalsstöð
22. maí 2009
Í gestastofu Landsvirkjunar í Végarði er í boði margháttaður fróðleikur. Hægt er að fræðast um byggingu Kárahnjúkavirkjunar og Fljótsdalsstöðvar í máli og myndum, skoða líkan af svæðinu og ýmislegt fleira. Jafnframt er hægt að nálgast helstu upplýsingar um ástand og færð vega.
Gestastofa í Végarði er opin milli kl. 10-17 alla daga til 31. ágúst.
Boðið er upp á skipulagðar skoðunarferðir inn í stöðvarhús Fljótsdalsstöðvar frá kl. 13:30 til 15:30 alla daga frá 10. júní til 10. ágúst. Átta manns geta tekið þátt í hverri ferð. Senda má fyrirspurnir og beiðnir um heimsóknir stærri hópa á netfangið vegardur hjá lv.is.
Í sumar verður í fyrsta sinn boðið upp á leiðsögn við Kárahnjúkastíflu. Á tímabilinu 11. júní til 20. ágúst verður farið í um 30 mínútna ferðir í fylgd leiðsögumanns um stífluna. Ferðirnar eru farnar á miðvikudögum og laugardögum og er áhugasömum bent á að gefa sig fram við leiðsögumann á bílastæðinu við listaverkið Hringiðu frá kl. 14 til 17.
Hvernig kemst ég í Végarð?
Frá Egilsstöðum er ekið inn með Lagarfljóti, öðru hvoru megin, framhjá Hengifossi og afleggjaranum upp að Kárahnjúkum. Ekið er áfram inn dalinn að Végarði sem er staðsettur um 4 km innar í dalnum, rétt fyrir innan Skriðuklaustur og Snæfellsstofu, upplýsingamiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs.
Hvernig kemst ég að Kárahnjúkum?
Úr Fljótsdal er ekið eftir vegi 910 sem leið liggur að Kárahnjúkum. Þegar ekið hefur verið yfir Kárahnjúkastífluna eru bílastæði við listaverkið Hringiða eftir Jónínu Guðnadóttur. Frá bílastæðinu er jafnframt hægt að ganga á göngustíg yfir stífluna og njúta útsýnisins yfir lónið og gljúfur.
Á meðan framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun stóðu yfir var sagt frá framgangi verksins á vef Kárahnjúkavirkjunar. Vefurinn er ekki lengur uppfærður.
Nánari upplýsingar um Fljótsdalsstöð >>
Fréttayfirlit
Prenta síðu