Landsvirkjun

Framkvæmdir og útboð

Eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að hefja skuli virkjanaframkvæmdir leggjum við mikinn metnað í hvert verk. Við byggjum til langs tíma og leggjum því mikla áherslu á gæði og vönduð vinnubrögð við byggingu virkjana ásamt lágmörkun á kostnaði.

Öryggismál eru forgangsverkefni við byggingu virkjana og er stefna okkar í öryggismálum svokölluð „núll-slysa stefna“ þar sem allt er gert sem mögulegt er til að koma í veg fyrir slys og öryggisvitund er í hávegum höfð frá upphafi verks til verkloka.

Framkvæmdir

Búðarhálsvirkjun

Framkvæmdir standa yfir við sextándu aflstöð Landsvirkjunar, Búðarhálsvirkjun, sem tekin verður í notkun 2013 og rekin samhliða öðrum virkjunum fyrirtækisins á Þjórsár-Tungnaársvæðinu. Áætlað afl stöðvarinnar er 95MW og orkugeta allt að 585 GWst á ári. 

Skoða framkvæmd

Vindmyllur

Lokið var við uppsetningu vindmyllanna í desember 2012 og á næstu misserum safnast upplýsingar um það hvort mögulegt sé að breyta íslenska rokinu í verðmæta auðlind. 

Skoða framkvæmd

Útboðsvefur

Á útboðsvef Landsvirkjunar eru birtar útboðsauglýsingar þar sem áhugasömum aðilum gefst kostur á að taka þátt og skoða þau útboð sem eru í gangi. Til að fá aðgang að útboðsvefnum þurfa notendur að skrá sig inn á vefinn og fylgja eftir leiðbeiningum sem þar er að finna. 

Opna útboðsvef