Landsvirkjun

Samfélag og umhverfi

Í sátt við samfélag og umhverfi

Landsvirkjun er í eigu íslensku þjóðarinnar. Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka afrakstur af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er treyst fyrir með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi. Með hagkvæmri vinnslu í sátt við umhverfi og samfélag getur fyrirtækið skilað arði til samfélagsins og tekið virkan þátt í uppbyggingu fjölbreytts og arðvænlegs atvinnulífs í fremstu röð á alþjóðamælikvarða.

Samfélagsleg ábyrgð Landsvirkjunar er að skapa arð, fara vel með auðlindir og umhverfi og stuðla að því að þekking og jákvæð áhrif af starfsemi fyrirtækisins skili sér til samfélagsins. Landsvirkjun tryggir að stefnumörkun um samfélagsábyrgð sé framfylgt með því að setja sér markmið og leggja áherslu á eftirtalda sex þætti í starfsemi fyrirtækisins.

Samfélagssjóður Landsvirkjunar

Samfélagssjóður Landsvirkjunar var stofnaður árið 2010 í þeim tilgangi að halda utan um styrkveitingar Landsvirkjunar. Sjóðurinn styrkir verkefni á sviði lista-, góðgerða-, menningar-, íþrótta- og menntamála. Stefna sjóðsins er að styrkja verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og möguleika á að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag. Stjórn sjóðsins er skipuð starfsfólki Landsvirkjunar.

Nánar um samfélagssjóðinn