Landsvirkjun

Stuðningur við samfélagið

Samfélagssjóður Landsvirkjunar var stofnaður árið 2010 í þeim tilgangi að halda utan um styrkveitingar Landsvirkjunar. Sjóðurinn styrkir verkefni á sviði lista-,  góðgerða-, menningar-, íþrótta og menntamála. Tekið er á móti umsóknum allt árið en úthlutað er úr sjóðnum ársfjórðungslega. Umsóknarfrestur er til 25. febrúar, maí, ágúst og nóvember ár hvert.

Stefna sjóðsins er að styðja verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og möguleika á að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag.

Næsti umsóknarfrestur er til 25. maí

Umsókn í Samfélagssjóð

Síðasta úthlutun

Úthlutun úr Samfélagssjóði á fyrsta ársfjórðungi 2013

  • Endurlífgunarnefnd Landspítalans
    1.000.000 krónur
  • Pétur M. Jónasson, endurbygging á rannsóknarbát
    1.000.000 krónur
  • ABC barnahjálp, fræðsla í íslenskum grunnskólum
    500.000 krónur
  • Dynjandi, endurskinsvesti til yngri bekkja grunnskóla
    350.000 krónur
  • Músík í Mývatnssveit
    250.000 krónur
  • NRF og Háskólinn á Akureyri
    250.000 krónur
  • Sumartónleikar við Mývatn
    200.000 krónur
  • Heimili og skóli
    150.000 krónur