Landsvirkjun er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt alþjóðastaðlinum ISO 14001 og hefur farið í gegnum ferli sem felur í sér stefnumótun á sviði umhverfismála og ítarlega skoðun á hvaða umhverfisáhrif starfsemi fyrirtækisins hefur. Frá árinu 2006 hefur fyrirtækið gefið út árlegar umhverfisskýrslur þar sem ítarlega er fjallað um umhverfisstjórnunarkerfið, vöktun umhverfisþátta og markmið fyrirtækisins í umhverfismálum. Lögð er áhersla á heiðarlega og opinskáa framsetningu gagna um árangur fyrirtækisins í umhverfismálum sem stuðla að opinni og málefnalegri umræðu um málaflokkinn.
Landsvirkjun leggur mikla áherslu á að nýta orkulindir með sjálfbærum hætti, með tilliti til áhrifa á efnahag, samfélag og umhverfi. Viðkvæm jarðhitasvæði er nauðsynlegt að byggja upp í þrepum og gefa tíma til þess að bregðast við nýtingu. Í vatnsaflsvirkjunum er leitast við að hámarka nýtingu auðlindarinnar að teknu tilliti til umhverfissjónarmiða sem miða að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif. Landsvirkjun leggur áherslu á að efla samráð og samstarf við hagsmunaaðila á svæðum þar sem uppbygging er fyrirhuguð og tryggja sem besta sátt um ný verkefni.
Við rekstur Landsvirkjunar er lögð áhersla á heildræna sýn á hagkvæmni, áreiðanleika og sambýli starfseminnar við umhverfi og samfélag. Lögð er rík áhersla á að þekkja umhverfisþætti starfseminnar og draga úr þeim eftir megni. Til að ná sífellt betri árangri eru þýðingarmiklir umhverfisþættir vaktaðir og stöðugt er unnið að úrbótum.
Skoða vöktun
1. Starfsemi án umhverfisóhappa.
2. Umgengni í sátt við lífríki og náttúru.
3. Betri nýting auðlinda.
4. Minni losun gróðurhúsalofttegunda.
5. Minni úrgangur.
2.97MB
4.24MB
4.04MB
6.24MB
3.23MB
1.14MB
9.05MB
8.53MB