Landsvirkjun

Landsvirkjun býður viðskiptavinum sínum hágæða þjónustu og samkeppnishæfar vörur. Stærstu viðskiptavinir fyrirtækisins eru í áliðnaðnum og annarri stóriðju.

Iðnaður

Alcoa

www.alcoa.is

Álverið á Reyðarfirði er stærsta álver Íslands og framleiðir 346.000 tonn. Álverið er einnig nýjasta álverið af þremur hér á landi en starfsemi þess hófst árið 2007. Landsvirkjun veitir álverinu alla þá orku sem það nýtir.

Becromal

www.becromal.eu

Becromal á Akureyri hóf starfsemi árið 2008 og framleiðir aflþynnur fyrir rafgreiningarþétta. Landsvirkjun veitir þeim alla þá orku sem þarf í framleiðsluna.

Elkem

www.jarnblendi.is

Kísiljárnsmiðjan á Grundartanga hóf rekstur árið 1979 og framleiddi 60.000 tonn á sínum fyrstu árum. Framleiðslugeta kísiljárnsmiðjunnar hefur nokkrum sinnum verið aukin frá þeim tíma en nú eru þar framleidd 120.000 tonn. Landsvirkjun sér fyrir allri orkuneyslu smiðjunnar.

Rio Tinto Alcan

www.riotintoalcan.is

Álverið í Hafnarfirði hóf starfsemi árið 1969 og framleiddi þá einungis 33.000 tonn. Frá þeim tíma hefur framleiðslugeta álversins verið aukin nokkrum sinnum og eru uppi áform um að auka hana enn frekar svo á árinu 2013 geti álverið framleitt allt að 225.000 tonn árlega. Landsvirkjun veitir álverinu alla þá orku sem það nýtir.

Century Aluminum

www.centuryaluminum.com

Álverið á Grundartanga hóf starfssemi sína árið 1998 með 60.000 tonna framleiðslu. Núverandi framleiðslugeta álversins er 280.000 tonn. Landsvirkjun sér álverinu nú fyrir u.þ.b. 1/3 af þeirri orku sem nýtt er.

Verne Global

www.verneglobal.com

Gagnaver Verne Global hóf starfsemi 2012 og veitir alþjóðlega gagnaversþjónustu á Íslandi. Starfsemin fer vaxandi og henni tengist öflugt frumkvöðlastarf þar sem alþjóðlegur gagnaversiðnaður er nýlega til kominn hér á landi. Landsvirkjun veitir gagnaveri Verne Global alla þá orku sem það nýtir.

Sölufyrirtæki

Orkuveita Reykjavíkur

www.or.is

Orkuveita Reykjavíkur er veitu- og þjónustufyrirtæki í eigu þriggja sveitarfélaga; Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar. Fyrirtækið framleiðir, dreifir og selur heitt vatn og kalt, rafmagn og annast uppbyggingu og rekstur fráveitu og gagnaveitu. Starfssvæði Orkuveitu Reykjavíkur nær til Suður- og Vesturlands auk höfuðborgarsvæðisins.

Orkusalan

www.orkusalan.is

Orkusalan var stofnuð í mars 2006 en formleg starfsemi hennar hófst í febrúar 2007. Orkusalan er dótturfyrirtæki RARIK og er tilgangur þess fyrst og fremst að sjá um framleiðslu, kaup og sölu á raforku í smásölu.

HS Orka

www.hsorka.is

HS Orka selur rafmagn til heimila og fyrirtækja um allt land.

Orkubú Vestfjarða

www.ov.is

Orkubú Vestfjarða hf. tók til starfa 1. júlí 2001 og er stofnað á grundvelli laga er samþykkt voru af Alþingi sama ár.

Landsnet

www.landsnet.is

Landsnet hf. var stofnað á grundvelli raforkulaga sem samþykkt voru á Alþingi á vormánuðum 2003. Hlutverk fyrirtækisins er að annast flutning raforku og stjórnun raforkukerfisins.

Fallorka

www.fallorka.is

Fallorka er raforkusölufyrirtæki.

Rafveita Reyðarfjarðar

Rafveita Reyðarfjarðar er fyrirtæki, sem hreppsnefnd Reyðarfjarðar starfrækir í þeim tilgangi, að veita raforku um hreppinn og selja hana til heimilisnotkunar, iðnaðar og annarra þarfa.