Tilgangur upprunaábyrgða er að styðja við uppbyggingu endurnýjanlegra orkukosta og þar með orkuskipti.

Hvað er upprunaábyrgð?

Upprunaábyrgð felur í sér upplýsingar um hvar, hvenær og hvernig ein megavattstund (MWst) af endurnýjanlegri raforku var unnin. Þar með staðfestir upprunaábyrgð að tiltekið magn raforku hafi verið unnið með endurnýjanlegum orkugjöfum.

Því má segja að endurnýjanlegir orkugjafar gefi af sér tvær aðskildar vörur, fyrst raforkuna og í beinu framhaldi upprunaábyrgðir.

Hvati til hraðari orkuskipta

Upprunaábyrgðakerfið er evrópskt kerfi sem skapar fjárhagslegan hvata til að vinna endurnýjanlega orku og flýtir þannig fyrir orkuskiptum í Evrópu.

Aðildarríki upprunaábyrgðakerfisins eru tuttugu og átta og er Ísland meðlimur í gegnum aðild sína að Evrópska efnahagssvæðinu.

Allir raforkunotendur, óháð staðsetningu innan Evrópu, geta stutt við vinnslu endurnýjanlegrar orku með því að kaupa upprunaábyrgðir. Kerfið er valkvætt og því byggja verðmæti upprunaábyrgða í grunninn á eftirspurn frá neytendum.

Enginn þarf að kaupa upprunaábyrgðir en öllum er frjálst að gera það.

Stuðningur við vinnslu endurnýjanlegrar orku

Fyrir hverja megavattstund sem unnin er af endurnýjanlegri raforku verður til ein upprunaábyrgð.

Sjái raforkunotandi sér hag í því að geta sýnt fram á stuðning sinn við vinnslu endurnýjanlegrar orku með alþjóðlega viðurkenndri aðferð kaupir hann upprunaábyrgðir.

Ákvörðunin um að borga aukalega getur bæði verið tekin út frá sjónarmiðum um samfélagslega ábyrgð en einnig vegna ákalls frá viðskiptavinum raforkunotandans um staðfestingu á notkun á endurnýjanlegri orku.

Stórnotendur á Íslandi sem kaupa upprunaábyrgðir af Landsvirkjun

Borealis Data Center rekur gagnaver á þremur stöðum á Íslandi, Blönduósi, Fitjum og í Reykjavík auk þess að reka jafnframt gagnaver í Finnlandi.

Umsvif Borealis hafa aukist hratt hér á landi undanfarin misseri og er fyrirhuguð frekari uppbyggingu til að hýsa margvísleg verkefni á sviði hátækniiðnaðar, gervigreindar og ofurtölva, bæði á Blönduósi og í Reykjavík.

First Water er laxeldisfyrirtæki sem ræktar lax í landeldisstöð sinni í Þorlákshöfn.

Starfsemin er í mikilli uppbyggingu en Landsvirkjun og First Water hafa samið um sölu og kaup á raforku til að mæta framtíðarþörf fyrirtækisins.

Gagnaver Verne Global er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og hóf starfsemi á Fitjum í Reykjanesbæ árið 2012.

Viðskiptavinir Verne Global eru stór alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir á sviði loftslagsrannsókna, fjármálaútreikninga, árekstraprófana og erfða- og líftækni.

Mikilvægar úttektir og vottanir

TŰV SUD

Frá árinu 2013 hefur þýska vottunarfyrirtækið TŰV SUD gert úttekt á sölu upprunaábyrgða hjá Landsvirkjun. Fyrirtækið tekur út framleiðslumæla og ber saman við fjölda útgefinna skírteina.

Þannig er tryggt af óháðum aðila að útgefnar upprunaábyrgðir séu jafn margar og framleiddar MWst af endurnýjanlegri orku. Hluti af þessari úttekt er að meta alla samninga um upprunaábyrgðir og gagnagæði.

CDP

Frá árinu 2022 hefur Landsvirkjun fengið A í einkunn frá alþjóðlegu samtökunum CDP fyrir stýringu eigin loftslagsáhrifa og afleiðinga loftslagsbreytinga á starfsemi fyrirtækisins. Árið 2021 fékk fyrirtækið einkunnina A-, þá fyrst íslenskra fyrirtækja til að ná svo góðum árangri.

Einkunnin A þýðir að Landsvirkjun telst til leiðandi fyrirtækja í loftslagsmálum á heimsvísu.

Spurt og svarað

Viltu vita meira?

Hér höfum við tekið saman algengustu spurningarnar um upprunaábyrgðir.

Ef þú finnur ekki svör við þínum spurningum getur þú sent okkur skilaboð á landsvirkjun@landsvirkjun.is.