Hvað er rafmagn
Stífla

Til að búa til rafmagn þarf orku

Við getum sýnt fram á stöðu- og hreyfiorku í einfaldri tilraun með blýanti.

Settu blýant á borðbrún og ýttu honum fram af þannig að hann detti á gólfi. Þegar blýanturinn er á hreyfingu notar hann hreyfiorku.

Taktu nú upp blýantinn og settu hann á borðið. Þú notaðir þína eigin orku til að lyfta honum upp og setja hann á borðið.

Þegar blýantinum er lyft upp erum við í leiðinni að yfirfæra orku á blýantinn. Þegar blýanturinn hvílir á borðinu býr hann yfir stöðuorku. Því hærra sem blýanturinn er þeim mun lengra er fallið. Það þýðir að því hærra sem blýanturinn er þeim mun meiri stöðuorku hefur hann.

Rafmagn sem búið er til í vatnsaflsvirkjunum nýtir sér orkugetuna í vatninu sem geymt er í miðlunarlónum. Þegar vatnið rennur í gegnum fallpípur stöðvarinnar og inn í vélarnar breytist stöðuorkan í hreyfiorku.

Það er þyngdarafl jarðar sem veldur því að vatnið rennur niður á við. Vatnið er undir þrýstingi þegar það kemur inn í vélar stöðvarinnar og er leitt inn í hverfilinn. Hreyfiorkan í vatninu fær hverfilinn til að snúast. Hverfillinn er festur við ás og efst á ásnum er rafalinn, sem hefur að geyma fjölda segulstála sem snúast hring eftir hring eins og hringekja. Utan við segulstálin eru miklir koparvafningar. Í koparvafningunum er vélarorkunni breytt í rafmagn sem er tilbúið til notkunar.


Útlit síðu: