Stíflur og uppistöðulón

Þegar um vatnsaflsvirkjun er að ræða nægir ekki að byggja stöðvarhús og leiða vatnið að því. Rennslið í ánum er oftast svo breytilegt að það þarf að safna vatninu saman í uppistöðulónum. Þaðan er hægt að miðla vatninu og nota það þegar á þarf að halda.


Til hvers eru lón

Rafmagn er ekki hægt að geyma, það verður að nota um leið og það er framleitt. Á Íslandi er notum við meira rafmagn á veturna en á sumrin, en því miður er rennsli ánna mest á sumrin og minnst á veturna.

Lesa meira

Vatnið leitt að stöðvarhúsinu

Til þess að hægt sé að framleiða rafmagn með hjálp vatnsins er nauðsynlegt að leiða það með einhverjum hætti frá lóninu að stöðvarhúsinu.

Lesa meira

Útlit síðu: