Búðarhálsvirkjun
Virkjunin hlaut samþykki í mati á umhverfisáhrifum árið 2001 og í framhaldi af því voru veitt bæði virkjunarleyfi og framkvæmdaleyfi. Byggingarframkvæmdir hófust í byrjun nóvember 2010 og er gert ráð fyrir afhendingu orku úr Búðarhálsvirkjun í árslok 2013. Áætlað afl virkjunarinnar er um 95 MW og orkugeta allt að 585 GWst á ári.
Í þingsályktunartillögu um rammaáætlun sem lögð var fram haustið 2011 er Búðarhálsvirkjun ásamt fimmtán öðrum virkjunarkostum ekki flokkuð í orkunýtingarflokk, biðflokk eða verndunarflokk. Ástæða þess er að viðkomandi virkjunarkostir falla ekki undir gildissvið laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun.
Annars vegar er þar um að ræða virkjunarkosti sem þegar er búið að gefa tilskilin leyfi fyrir, þar með talið byggingar- og/eða framkvæmdarleyfi. Er þar um að ræða Búðarhálsvirkjun og Hellisheiðavirkjun.
Hins vegar er um að ræða virkjunarkosti sem eru á landssvæði sem nýtur friðlýsingar en þeir þrettán virkjunarkostir eru á svæði Vatnajökulsþjóðgarðs og innan Friðlands að fjallabaki á Torfajökulssvæði.

