Fjármögnun
Landsvirkjun hefur skrifað undir þrjá lánasamninga til að fjármagna gerð Búðarhálsvirkjunar en fjármögnun virkjunarinnar er nú lokið. Samningarnir þrír voru gerðir við Landsbankann, Norræna fjárfestingabankann og Evrópska Fjárfestingabankann.
Þann 13. apríl 2011 gerðu Landsvirkjun og Landsbankinn samning um skuldabréfaútgáfu að upphæð 100 milljónir Bandaríkjadala eða sem svarar til rúmra 11,2 milljarða íslenskra króna. Þessi skuldabréfaútgáfa tryggir fjármagn til Búðarhálsvirkjunar óháð niðurstöðu erlendra matsfyrirtækja á lánshæfni Ríkissjóðs Íslands.
Þann 16. mars 2011 var gerður lánasamningur við Norræna fjárfestingabankann að fjárhæð 70 milljónir Bandaríkjadollara eða að jafnvirði um 8,6 milljarða króna á þáverandi gengi.
Þann 23. mars 2011 var gerður lánasamningur við Evrópska fjárfestingabankann að fjárhæð 70 milljónir Evra eða að jafnvirði um 11,3 milljarða króna á þáverandi gengi. Lán þetta hefur fyrirvara um lánshæfi Ríkissjóðs Íslands.
Landsvirkjun og Alcan á Íslandi undirrituðu þann 15. júní 2010 samning um orkusölu til álversins í Straumsvík. Endursamið var annars vegar um verð á núverandi orkusölu til álversins og hins vegar var samið um afhendingu viðbótar orku, 658 GWst vegna áætlaðrar framleiðsluaukningar álversins. Gert var ráð fyrir að viðbótar orka þessi muni meðal annars koma frá nýrri virkjun Landsvirkjunar á Búðarhálsi.
Gerðir voru vanalegir fyrirvarar við gerð samningsins, meðal annars samþykki stjórna beggja fyrirtækjanna. Allir fyrirvarar samningsins voru fullgiltir í september 2010 og tók samningurinn gildi 1. október 2010.
