Framkvæmd

Aðalverktaki Landsvirkjunar er Ístak hf. sem vann útboð Landsvirkjunar um byggingu Búðarhálsvirkjunar. Áætlað er að verkið verði unnið á árunum 2010-2013 og báðar vélar stöðvarinnar verði komnar í rekstur fyrir árslok 2013.

Inntakslón Búðarhálsvirkjunar, Sporðöldulón, verður myndað með um 2,1 kílómetra langri stíflu yfir Köldukvísl, skammt ofan við ármót Köldukvíslar og Tungnaár rétt neðan við Hrauneyjarfossstöð. Mesta hæð stíflunnar verður um 24 metrar en áætlað flatarmál lónsins eru sjö ferkílómetrar. Frá Sporðöldulóni verður aðrennslisskurðurinn inn að Búðarhálsi þaðan sem vatnið fer um fjögurra kílómetra löng aðrennslisgöng að stöðvarhúsinu.

Frá stöðvarhúsinu verður um 330 metra frárennslisskurður út í Sultartangalón. Lögð verður um sjö kílómetra löng og 220 kílóvatta háspennulína frá Búðarhálsstöð að Hrauneyjafosslínu til þess að tengja stöðina við landskerfið. Stöðvarhús Búðarhálsvirkjunar verður ofanjarðar og grafið inn í hlíð Búðarháls við Sultartangalón.

Gert er ráð fyrir að flestir verði við störf sumarið 2012, en þá verði um 300 manns að störfum. Að jafnaði er gert ráð fyrir að yfir allt árið 2011 og 2012 verði um 200 manns við störf. Gert er ráð fyrir að heildarársverk sem skapist vegna byggingar Búðarhálsvirkjunar yfir allan framkvæmdartímann séu um 6-700.

Skipting eftir starfsgreinum er áætluð eftirfarandi:

  • Verkamenn        40%
  • Tækjamenn       25%
  • Bílstjórar           10%
  • Iðnaðarmenn      25%
  • Samtals            100%

Auglýst var eftir tilboðum í byggingarvinnu Búðarhálsvirkjunar í júní 2010. Í framhaldi af opnun tilboða var í október 2010 gerður verksamningurvið Ístak hf. um byggingu stöðvarhúss, jarðvegsstíflu og aðkomugangna ásamt tilheyrandi mannvirkjum. Fyrstu byggingarframkvæmdirnar voru gröftur fyrir stöðvarhúsi, sveifluþró og aðstöðusköpun.

Í október 2010 voru opnuð tilboð í vél- og rafbúnað stöðvarinnar. Tilboð bárust frá fjórum erlendum framleiðendum og var í byrjun desember samið við þýska fyrirtækið Voith Hydro. Í útboðsgöngnum var gert ráð fyrir tveimur 40 MW vélum í stöðinni en gerður var viðauki við samninginn við Voith Hydro um stækkun véla þannig að samanlagt afl þeirra verði um 95 MW.

Eftirtaldir samningar hafa verið undirritaðir vegna byggingar Búðarhálsvirkjunar

Útboð Verk Samið við Dags.
20024 BUD-65, Búðarhálsvirkjun, Eftirlit  Hnit hf.  30.05.11
20039 BUD-08 Rekstur mötuneyta og vinnubúða  ISS Ísland ehf.  26.05.11
20020 BUD-33 Búðarhálsvirkjun - Lokur og þrýstipípur Montavar Metalna nova d.o.o  07.04.11
NTH-30 NTH-30 Lower Þjórsá and Búðarháls Hydroelectric Projects -  Electromechanical  Equipment  Voith Hydro GmbH & Co  01.04.11
20015 Búðarhálsvirkjun BUD-01 Byggingarvinna  Ístak hf. 22.10.10
       
Aðrir minni samningar:
BUD-06b Búðarhálsvirkjun, vinnubúðir II, flutningur Í 2552 ehf. 26.06.10
BUD-06c Búðarhálsvirkjun, vinnubúðir II, uppsetning Byggingarfélagið Sakki ehf. 15.06.10
BUD-06a  Búðarhálsvirkjun, vinnubúðir II, jarðvinna  Nesey ehf. 29.04.10 
BUD-61 Flutningur vinnubúða Sel ehf.  26.11.08
       

 



Útlit síðu: