Framtíð

Með Búðarhálsvirkjun verður búið að fullnýta fall frá Þórisvatni niður fyrir Sultartanga sem er í samræmi við það hlutverk fyrirtækisins að hámarka afrakstur af þeim orkulindum sem fyrirtækinu er trúað fyrir með sjálfbæra nýtingu, verðmætasköpun og hagkvæmni að leiðarljósi.

Búðarhálsvirkjun verður rekin samhliða öðrum virkjunum Landsvirkjunar á Þjórsár- Tungnaár svæðinu. Orkan frá Búðarhálsi verður flutt frá stöðinni að tengivirki Landsnets framan við stöðina og þaðan með háspennulínu þvert yfir Búðarháls að Hrauneyjalínu.

Gert er ráð fyrir afendingu orku úr Búðarhálsvirkjun í árslok 2013 en áætlað afl virkjunarinnar verður um 95 MW og orkugeta allt að 585 GWst á ári. Undirritaður hefur verið samningur við Alcan á Íslandi um afhendingu viðbótar orku, 658 GWst, til álversins í Straumsvík sem koma mun meðan annars frá nýrri virkjun við Búðarháls.


Útlit síðu: