Fréttasafn

Landsvirkjun og iðnaðarráðuneyti ljúka samstarfi um markaðsskrifstofu - 31.12.2003

Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, og Friðrik Sophusson, forstjóri LV, undirrituðu í gær samkomulag um lok samstarfs um Markaðsskrifstofu iðnaðarráðuneytisins og LV (MIL). Samkomulagið tekur gildi þann 1. janúar 2004.

Lesa meira
 

Verkefni á Grænlandi - 23.12.2003

Föstudaginn 19. desember sl. undirritaði Qorlortorsuaq samsteypan, sem er í eigu E. Pihl & Søn í Danmörku, YIT í Finnlandi, Ístaks og Landsvirkjunar, verksamning við Nukissiorfiit rafveituna á Grænlandi um byggingu Qorlortorsuaq (Stórifoss) virkjunarinnar ásamt flutningsvirkjum.

Lesa meira
 

Matsskýrsla vegna Bjarnarflagsvirkjunar lögð fram - 23.12.2003

Matsskýrsla vegna fyrirhugaðrar Bjarnarflagsvirkjunar hefur verið lögð fram hjá Skipulagsstofnun. Bornir eru saman þrír kostir fyrir staðsetningu stöðvarhúss og önnur mannvirki virkjunarinnar.

Lesa meira
 

Opnun tilboða í stíflur við Kárahnjúkavirkjun - 19.12.2003

Í dag, 19. desember 2003, voru opnuð tilboð í tvær stíflur við Hálslón Kárahnjúkavirkjunar, Sauðárdalsstíflu KAR-12 og Desjarárstíflu KAR-13. Er önnur stíflan, Desjarárstífla, austan megin við Kárahnjúkastíflu en hin stíflan Sauðárdalsstífla vestan megin.

Lesa meira
 

Alcoa svarar grein í Ecologist - 19.12.2003

Breska umhverfismálatímaritið The Ecologist birtir grein í nýjasta tölublaðinu þar sem Kárahnjúkavirkjun og Alcoa er fundið flest til foráttu. Alcoa hefur séð ástæðu til að svara ýmsu því sem þar kemur fram.

Lesa meira
 

Samið vegna stækkunar Norðuráls - 18.12.2003

Landsvirkjun, Orkuveita Reykjavíkur og Hitaveita Suðurnesja semja vegna fyrirhugaðrar stækkunar Norðuráls. Lesa meira

 

Landsvirkjun svarar grein í Guardian - 17.12.2003

Í framhaldi af grein Susan DeMuth í helgarblaði Guardian þar sem dregin er upp  afar villandi mynd af Kárahnjúkavirkjun, Alcoa  og íslensku samfélagi áttu sér stað nokkur bréfaskipti milli Landsvirkjunar og  ritstjórnar Guardian eins og birst hefur hér á vefnum. 

Lesa meira
 

Heimildarmynd um Kárahnjúkavirkjun - 12.12.2003

Ný heimildarmynd um Kárahnjúkavirkjun verður frumsýnd í Sjónvarpinu þriðjudaginn 16. desember.

Lesa meira
 

Herferð á hendur Ómari Ragnarssyni - 12.12.2003

Í kjölfar greinar um Kárahnjúkavirkjun í Guardian-Weekend spurðu sig margir að því hvort Landsvirkjun stæði að herferð gegn Ómari Ragnarssyni, fréttamanni. Í bréfi til Landsvirkjunar kemur fram að svo er alls ekki.

Lesa meira
 

Sterk viðbrögð við grein í The Guardian um Kárahnjúkavirkjun - 8.12.2003

Grein Susan De Muth lausapenna í helgarrit the Guardian, eins helsta dagblaðs í Bretlandi, þar sem hún fjallaði um Kárahnjúkavirkjun og íslenskt samfélag hefur vakið athygli hér á landi.

Lesa meira
 

Samstarfssamningur Landsvirkjunar og Ferðafélags Fljótsdalshéraðs - 8.12.2003

Landsvirkjun og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs hafa gert með sér samstarfssamning til  þriggja ára um eflingu ferðamennsku og útivistar á Snæfellssvæðinu.

Lesa meira
 

Þjóðminjasafnið – svona var það - 4.12.2003

Undanfarin ár hefur Landsvirkjun verið bakhjarl Þjóðminjasafnsins. Á laugardaginn opnar Þjóðminjasafnið afmælissýningu og vefsíðu sem unnin er í samstarfi við Landsvirkjun.

Lesa meira
 

Umhverfislistaverk við Vatnsfellsvirkjun - 1.12.2003

Landsvirkjun fékk í haust Landgræðslu ríkisins til að setja upp listaverk Gjörningaklúbbsins fyrir framan mannvirki Vatnsfellsvirkjunnar.

Lesa meira
 

Þýskt fyrirtæki annast stálfóðrun fallganga Kárahnjúkavirkjunar - 21.11.2003

Fulltrúar Landsvirkjunar og þýska fyrirtækisins DSD Stahlbau GmbH undirrituðu í dag samning upp á nærri 2.3 milljarða króna, fyrir utan virðisaukaskatt, um stálfóðrun fallganga Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira
 

Strandmyndun við Blöndulón - 21.11.2003

Á síðastliðnum 10 árum hefur gróðurfar, grunnvatnsstaða og strandmyndun við Blöndulón verið rannsökuð. Borgþór Magnússon, gróðurvistfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands tók saman helstu niðurstöður þessara rannsókna á fræðslufundi í Náttúrufræðistofnun Íslands.

Lesa meira
 

Ráðstefna um raforkumál - 18.11.2003

Fimmtudaginn 20. nóvember verður haldin ráðstefna um breytingar á skipan raforkumála á Íslandi. Ráðstefnan verður haldin í hátíðarsal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Lesa meira

 

Framtíð orkumála heimsins - 12.11.2003

Hvernig meta forystumenn Alþjóðaorkuráðsins (World Energy Council) ástand og horfur í orkumálum heimsins? Við birtum hér nýlega grein eftir Gerald Doucet aðalritara WEC þar sem hann leggur mat á framboð og eftirspurn á orkumörkuðum heimsins næstu áratugina og fjallar um viðleitni til að auka sjálfbærni í orkumálum.

Lesa meira
 

Boranir í Hágöngum lofa góðu - 3.11.2003

Í síðustu viku var tilraunaborhola Landsvirkjunar á Hágöngusvæðinu opnuð og verður holan látin blása á næstu vikum. Fyrstu mælingar á holunni lofa góðu um afl hennar. 

Lesa meira
 

50 ár frá gangsetningu Laxár II - 29.10.2003

Þann 10. október árið 1953 var Laxárstöð II gangsett og straumi hleypt á nýja háspennulínu til Akureyrar. Tilkoma stöðvarinnar bætti úr miklum orkuskorti á Akureyri.

Lesa meira
 

Krakkar úr Árbæjarskóla heimsækja Ljósafossstöð - 27.10.2003

Þessa vikuna munu um 250 krakkar úr Árbæjarskóla í Reykjavík heimsækja Ljósafossstöð í Soginu og fræðast um raforkuframleiðslu og vatnið.

Lesa meira
 

50 ára afmæli Írafossstöðvar - 21.10.2003

Þann 16. október síðastliðinn voru 50 ár liðin frá því Írafossstöð í Soginu var gangsett. Á þessum 50 árum hefur Írafossstöð framleitt 12.867 GW stundir af raforku.

Lesa meira
 

Sogslína tvö 50 ára - 20.10.2003

Um þessar mundir eru 50 ár liðin frá því að Sogslína 2 var tekin í notkun. Línan sem liggur frá Írafossvirkjun að aðveitustöð í Elliðaárdal er fyrsta raflínan á Íslandi sem strengd var á milli stálturna.

Lesa meira
 

Samningur gerður um vél- og rafbúnað Kárahnjúkavirkjunar - 16.10.2003

Í dag var skrifað undir samning við VA TECH Escher Wyss GmbH í Þýskalandi um framleiðslu og uppsetningu véla- og rafbúnaðar fyrir Kárahnjúkavirkjun. Lesa meira

 

Fjölgun í stjórn Landsvirkjunar - 13.10.2003

Á síðasta stjórnarfundi Landsvirkjunar gerðust þau tíðindi að þátttakendum á stjórnarfundi fjölgaði um einn.

Lesa meira
 

Lækkað umframaflgjald á hverja kWst - 29.9.2003

Vatnsbúskapur Landsvirkjunar hefur verið góður að undanförnu og eru verulegar horfur á að nægt afl verði í kerfi Landsvirkjunar í vetur. Lesa meira

 

Blöndustöð fær ISO 9001 vottun - 16.9.2003

Vottun Blöndustöðvar er fyrsti áfanginn í gæðavottun Landsvirkjunar. Þess má vænta að vinnsla og sala á rafmagni verði að fullu vottuð samkvæmt ISO 9001 staðlinum á næsta ári.

Lesa meira
 

Frestun Norðlingaölduveitu - Útskýringar Landsvirkjunar - 15.9.2003

Ýmsir hafa orðið undrandi á því að Landsvirkjun skyldi taka ákvörðun um að fresta byggingu Norðlingaöldulóns, sem ætlað var að útvega rafmagn til fyrirhugaðrar stækkunar Norðuráls á Grundartanga.  Hér verður sú ákvörðun skýrð. Lesa meira

 

Samningar um stöðvarhússhvelfingar undirritaðir - 9.9.2003

Landsvirkjun undirritaði í dag samninga við Fosskraft JV (E. Phil & Søn, Hochtief Construction AG, Íslenskir aðalverkatar og Ístak hf.) um gerð stöðarhússhvelfingar Kárahnjúkavirkjunar. Lesa meira

 

Frestun Norðlingaölduveitu - 5.9.2003

Stjórn Landsvirkjunar ákvað á fundi sínum í dag að fresta byggingu Norðlingaölduveitu.  Ástæða frestunarinnar er m.a. tímaþröng við undirbúning verksins og ekki hefur enn reynst unnt að tryggja rekstraröryggi veitunnar nægilega. Lesa meira

 

Skipulagsstofnun fellst á fyrirhugaðar virkjanir við Urriðafoss og Núp - 20.8.2003

Skipulagsstofnun hefur fallist á fyrirhugaðar virkjanir við Urriðafoss og Núp ásamt tengingu virkjananna við Búrfellslínu 1 og 2 með nokkrum skilyrðum. Lesa meira

 

Afkoma Landsvirkjunar fyrstu sex mánuði ársins 2003 - 12.8.2003

Á fyrstu sex mánuðum ársins 2003 var hagnaður af rekstri Landsvirkjunar 1.480 milljónir króna, en á sama tímabili fyrra árs var hagnaður 4.472 milljónir.

Lesa meira
 

Lán að hætti Landsvirkjunar - 11.7.2003

Í gær undirritaði Landsvirkjun samning um stærsta sambankalán sem tekið hefur verið af íslenskum aðila. Lánsupphæðin nemur um 31 milljarði íslenskra króna.

Lesa meira
 

Trompetsystur í Laxá - 8.7.2003

Sannkallaðir stórtónleikar voru haldnir í Laxárvirkjun laugardaginn 5. júlí þegar Lárusdætur, þær Þórunn, Hjördís Elín og Ingibjörg, komu norður og héldu stórtónleika fyrir gesti í Laxárvirkjun 3.

Lesa meira
 

Unnið að aðskilnaði flutningssviðs frá Landsvirkjun - 7.7.2003

Flutningssvið Landsvirkjunar sem annast hefur orkuflutning verður gert að sjálfstæðu fyrirtæki þann 1. júlí 2004. Nú er unnið að aðskilnaði flutningssviðs frá Landsvirkjun. Lesa meira
 

Hækkun stíflu í Laxá - 25.6.2003

Í drögum að tillögu að matsáætlun sem hafa verið send Skipulagsstofnun kemur fram hvernig Landsvirkjun hyggst standa að gerð matsáætlunar vegna hækkunar stíflu í Laxá.

Lesa meira
 

Hækkun stíflu í Laxá kynnt á opnu húsi - 25.6.2003

Almenningi gefst kostur á að kynna sér drög að tillögu að matsáætlun á opnu húsi að Ýdölum fimmtudaginn 26. júní. Lesa meira

 

Aflstöðvar opnar almenningi - 6.6.2003

Nú opna aflstöðvar Landsvirkjunar ein af annarri. Á síðastliðnum árum hafa stöðvarnar verið vinsæll viðkomustaður ferðalanga. Lesa meira

 

Tilboð opnuð í þrjá verkþætti Kárahnjúkavirkjunar - 5.6.2003

Í dag voru opnuð tilboð í þrjá verkþætti Kárahnjúkavirkjunar, gerð stöðvarhúss og neðanjarðarvirkis, stálfóðringar og lokabúnað og vél- og rafbúnað virkjunarinnar.

Lesa meira
 

Tillaga að matsáætlun Bjarnarflagsvirkjunar - 26.5.2003

Landsvirkjun ráðgerir að reisa í áföngum allt að 90 MW jarðvarmavirkjun, Bjarnarflagsvirkjun, í Bjarnarflagi í Skútustaðahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu. Hver áfangi yrði af stærðinni 20-40 MW. Lesa meira

 

Myndlistarsýning í Ljósafossstöð - 22.5.2003

Sunnlendingar láta ljós sitt skína í Ljósafossstöð á laugardaginn þegar opnuð verður myndlistarsýning þeirra Svandísar Egilsdóttur og Gunnars Arnar. Lesa meira

 

Landsvirkjun og ríkið sýknuð af kröfum Náttúruverndarsamtaka Íslands og fleiri - 21.5.2003

Héraðsdómur hefur sýknað Landsvirkjun og ríkið í máli Náttúruverndarsamtaka Íslands og fleiri sem kröfðust þess að úrskurður umhverfisráðherra um Kárahnjúkavirkjun yrði felldur úr gildi.

Lesa meira
 

Kynning á umhverfisáhrifum virkjana við Núp og Urriðafoss - 8.5.2003

Landsvirkjun kynnir skýrslur um mat á umhverfisáhrifum virkjana í Þjórsá við Urriðafoss og Núp í opnu húsi í Brautarholti á Skeiðum, að Laugalandi í Holtum og í stjórnstöð Landsvirkjunar í Reykjavík. Lesa meira

 

Virkjun neðsta hluta Þjórsár - 7.5.2003

Landsvirkjun hefur á undanförnum misserum unnið að mati á umhverfisáhrifum vegna virkjunaráforma í neðsta hluta Þjórsár. Annars vegar er um að ræða virkjun Þjórsár við Núp og hins vegar við Urriðafoss.

Lesa meira
 

Drög að tillögu að matsáætlun Bjarnarflagsvirkjunar - 30.4.2003

Landsvirkjun ráðgerir að reisa í áföngum allt að 90 MW jarðvarmavirkjun, í Bjarnarflagi í Skútustaðahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu. Hver áfangi yrði af stærðinni 20-40 MW. Á þessari síðu er hægt að kynna sér framkvæmdina og lesa drög að tillögu að matsáætlun hennar.

Lesa meira
 

Vetni í brennidepli á sumardaginn fyrsta - 10.4.2003

Tveggja daga ráðstefna um vetni og endurnýjanlega orkugjafa verður haldin í Reykjavík dagana 24. og 25. apríl

Lesa meira
 

Saga Film gerir heimildaþætti um Kárahnjúkavirkjun - 4.4.2003

Stjórn Landsvirkjunar hefur samþykkt að ganga til samninga við Saga Film vegna heimildaþátta sem gerðir verða um Kárahnjúkavirkjun.

Lesa meira
 

Samráðsfundur Landsvirkjunar - 4.4.2003

Árlegur samráðsfundur Landsvirkjunar var haldinn í dag. Á fundinum var Kárahnjúkavirkjun í miðpunkti. Kynntir voru ýmsir þættir framkvæmdarinnar og sýndar voru þrívíddarmyndir af fyrirhuguðum framkvæmdum.

Lesa meira
 

Jarðfræði Kárahnjúkasvæðisins - 31.3.2003

Í deilum um Kárahnjúkavirkjun hefur nokkuð verið fjallað um jarðfræði svæðisins og hefur verið fullyrt að enn sé eldvirkni á svæðinu. Í Morgunblaðinu í dag fjalla jarðfræðingarnir Ágúst Guðmundsson og Jóhann Helgason um svæðið og er niðurstaða þeirra meðal annars að Kárahnjúkar geti ekki talist þróað eldfjall.

Lesa meira
 

Landsvirkjun undirritar samninga við Impregilo - 18.3.2003

Landsvirkjun og ítalska verktakafyrirtækið Impregilo undirrituðu í dag samninga um byggingu Kárahnjúkastíflu og gerð aðrennslisganga virkjunarinnar.

Lesa meira
 

Skrifað undir samninga við Alcoa - 17.3.2003

Yfir þúsund manns fylgdust með undirituninni sem fór fram á Reyðarfirði á laugardaginn. Sjálf undirritunin tók um 40 mínútur enda voru samningarnir 14 talsins, sumir bæði á íslensku og ensku og skjölin alls 42.

Lesa meira
 

Margar hendur vinna létt verk! - samstarfsaðilar óskast - 11.3.2003

Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að vinna að verkefnum á sviði umhverfismála eða ferðamála í sumar.

Lesa meira
 

Góð afkoma Landsvirkjunar árið 2002 - 10.3.2003

Á árinu 2002 var hagnaður á rekstri Landsvirkjunar 5.729 milljónir króna, samanborið við 1.839 milljóna króna tap árið á undan.

Lesa meira
 

Hverjir gera kvikmynd um Kárahnjúka? - 6.3.2003

Í lok janúar 2003 auglýsti Landsvirkjun eftir aðilum til að gera kvikmynd um Kárahnjúkaverkefnið.  Alls bárust 32 umsóknir. Fjölmargar voru afar vandaðar og valið erfitt.  Því miður reyndist nauðsynlegt að hafna mörgum hæfum umsækjendum. 

Lesa meira
 

Niðurstöður í forvali fyrir vél- og rafbúnað Kárahnjúkavirkjunar - 25.2.2003

Að undangengnu forvali hafa sex fyrirtæki verið samþykkt til til að taka þátt í útboði fyrir vél- og rafbúnað Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira
 

Ákveðið að ganga til samninga við Norðurál um orkuöflun - 25.2.2003

Landsvirkjun hefur að undanförnu skoðað úrskurð setts umhverfisráðherra um Norðlingaöldu með tilliti til arðsemi verkefnisins.

Lesa meira
 

Impregilo opnar skrifstofu á Íslandi. - 17.2.2003

Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo, sem átti lægsta tilboð í gerð stíflumannvirki Kárahnjúkavirkjunar og aðrennslisgöng hennar, hefur nú opnað skrifstofu á Íslandi.

Lesa meira
 

Miðlunarforði Landsvirkjunar aðgengilegur á vefnum - 10.2.2003

Nú er hægt að nálgast upplýsingar um miðlunarforða Landsvirkjuar og vatnshæðir í nokkrum miðlunarlónum hér á vef Landsvirkjunar.

Lesa meira
 

Góð viðbrögð við auglýsingu um heimildarmynd - 10.2.2003

Viðbrögð við auglýsingu Landsvirkjunar hafa verið mikil og jákvæð meðal kvikmyndagerðarmanna.  Fram hafa komið nokkrar fyrirspurnir um verkefnið og hvernig valið verður úr umsækjendum um að fá það.

Lesa meira
 

Stjórn Landsvirkjunar samþykkir samninga við Impregilo - 7.2.2003

Á fundi í morgun samþykkti stjórn Landsvirkjunar að heimila forstjóra fyrirtækisins að undirrita og afhenda ítalska verktakafyrirtækinu Impregilo veitingabréf fyrir gerð Kárahnjúkastíflu og aðveituganga Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira
 

Heimildamynd um byggingu Kárahnjúkavirkjunar - 31.1.2003

Landsvirkjun óskar eftir kvikmyndagerðarmanni eða fyrirtæki til að gera mynd um byggingu Kárahnjúkavirkjunar þar sem sjálfstæð og skapandi efnistök yrðu í fyrirrúmi og litið yrði til framkvæmdarinnar í víðu samhengi.

Lesa meira
 

Úrskurður um Norðlingaveitu kemur á óvart - 30.1.2003

Það kemur Landsvirkjun á óvart að gerð sé krafa um að flytja eigi lónið út úr friðlandinu. Hafa þarf í huga að í friðlýsingunni, sem byggðist á víðtæku samkomulagi, var gert ráð fyrir mun stærra lóni en Landsvirkjun hefur lagt til og að umhverfisáhrifin eru ekki umtalsverð eins og kemur fram í úrskurði Skipulagsstjóra.

Lesa meira
 

Fallist á Norðlingaölduveitu með ströngum skilyrðum - 30.1.2003

Settur umhverfisráðherra, Jón Kristjánsson, felldi í dag úrskurð um Norðlingaölduveitu. Í úrskurðinum er fallist á Norðlingaölduveitu, en sett eru mjög ströng skilyrði fyrir framkvæmdinni.

Lesa meira
 

Jarðhitarannsóknir á Torfajökulssvæðinu - 30.1.2003

Nýlega var fjallað um jarðhitarannsóknir á Torfajökulssvæðinu í Ríkisútvarpinu og í dag var rætt um þær á Alþingi. Landsvirkjun telur að rétt sé að nokkrar staðreyndir um málið komi fram.

Lesa meira
 

Rangfærslur um virkjanamál - 27.1.2003

Þorkell Helgason orkumálastjóri, ritaði fróðlega grein í Morgunblaðið 26. janúar undir yfirskriftinni ,,Rangfærslur um virkjanamál". Gerir Þorkell þar að umtalsefni sínu ýmsar fullyrðingar sem heyrst hafa í umræðunni um virkjanamál að undanförnu.

Lesa meira
 

Alcan á Íslandi og Landsvirkjun undirrita orkusamning - 23.1.2003

Fulltrúar Landsvirkjunar og Alcan á Íslandi, sem rekur álverið í Straumsvík, undirrituðu í dag rafmagnssamning um kaup og sölu á 261 GWh/ári af raforku, sem jafngildir 30 MW í afli.

Lesa meira
 

Áhrif jarðskjálfta á háspennulínur Landsvirkjunar - 17.1.2003

Ísland er land eldgosa og jarðskjálfta en það er líka land sterkra vinda og harðra veðra.

Lesa meira
 

Landsvirkjun samþykkir samning við Fjarðaál (Alcoa) - 10.1.2003

Stjórn Landsvirkjunar samþykkti á fundi sínum í dag rafmagnssamning Landsvirkjunar og Fjarðaáls sf.

Lesa meira
 

Helstu þættir rafmagnssamnings vegna álvers í Reyðarfirði - 7.1.2003

Þrátt fyrir að raforkuverðið sem Landsvirkjun hefur samið um við Alcoa sé trúnaðarmál er ýmislegt í samningnum sem sýnir hvers eðlis hann er.

Lesa meira
 

Niðurstaða eigendanefndar um arðsemi Kárahnjúkavirkjunar - 7.1.2003

Nú liggur fyrir niðurstaða nefndar sem eigendur Landsvirkjunar skipuðu til þess að fara yfir mat Landsvirkjunar á arðsemi og fjárhagslegri áhættu vegna Kárahnjúkavirkjunar og sölu raforku til álvers Fjarðaáls á Reyðarfirði.

Lesa meira
 

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica