Beint í leiðarkerfi vefsins.
Landsvirkjun starfrækir sjóð til styrktar nemendum á framhaldsstigi háskólanáms (meistara- og doktorsnám), sem eru að vinna að lokaverkefnum sínum og eru styrkir veittir úr sjóðnum árlega.
Lesa meiraÍ gær kveikti Rannveig Rist forstjóri ALCAN á Íslandi á lýsingu við mastur Landsvirkjunar við álverið í Straumsvík.
Lesa meiraViðurkenningin „Lóð á vogarskálina“ var veitt öðru sinni á ráðstefnu Hollvina hins gullna jafnvægis fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki.
Lesa meiraÍ byrjun nóvember náðist stór áfangi í innleiðingu gæðastjórnunar hjá Landsvirkjun. Orkusvið í heild sinni fékk vottun samkvæmt staðli ISO 9001:2000. Lesa meira
Þann 12. nóvember sl. undirritaði Landsvirkjun lánssamning að upphæð 50 milljónir evra, eða um 4,3 milljarðar króna, við Evrópska fjárfestingabankann (EIB) í Lúxemborg. Lesa meira
Landsvirkjun rekur fimm aflstöðvar á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu og til þessa hafa verið þar tvær starfsstöðvar, önnur við Búrfell og hin í Hrauneyjum. Á undanförnum misserum hefur það verið til skoðunar hvort skynsamlegt geti verið að sameina þessar starfsstöðvar í eina og reka aflstöðvarnar fimm frá einni starfsstöð. Lesa meira
Ráðstefna og sýning í Smáralind í tilefni af aldarafmæli rafvæðingar á Íslandi 28. október til 1. nóvember.
Lesa meiraFyrirtækin Landsvirkjun og Alcoa hafa bæði hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar að leiðarljósi í starfi sínu. Þau hafa tekið höndum saman og búið til sérstakt verkefni um mat á sjálfbærri þróun til að fylgjast sem best með áhrifum framkvæmdanna. Lesa meira
Í gær var Þjóðminjasafnið opnað eftir viðamiklar endurbætur á safnahúsinu sem staðið hafa frá árinu 1997. Fyrir hönd Hollvina Þjóðminjasafnsins flutti Friðrik Sophusson ávarp við opnunina.
Lesa meiraNú í sumar tóku Landmælingamenn Landsvirkjunar þátt í GPS landmælingum á grunnstöðvaneti Íslands. Alls komu um 40 manns að verkinu sem unnið var að frumkvæði Landmælinga Íslands. Mælingarnar stóðu í 10 daga og lauk 14. ágúst síðastliðinn.
Lesa meiraÁ fyrstu sex mánuðum ársins 2004 var halli á rekstri Landsvirkjunar 645 milljónir króna, en á sama tímabili fyrra árs var hagnaður 1.480 milljónir. Handbært fé frá rekstri nam 2.694 milljónum króna samanborið við 3.151 milljón króna á árinu 2003.
Lesa meiraSérfræðingar Landsvirkjunar hafa í dag ásamt hönnuðum, verktökum og framkvæmdaeftirliti við Kárahnjúka farið yfir stöðuna sem komin er upp vegna vatnavaxta í Jöklu.
Lesa meiraÍ dag, miðvikudaginn 30. júní, verða Jarðböðin við Jarðbaðshóla í Mývatnssveit opnuð formlega við hátíðlega athöfn. Landsvirkjun er meðal stærstu hluthafa félagsins og veitir því aðgang að jarðhitavatni (skiljuvatni) í Bjarnarflagi til rekstursins.
Lesa meiraÍ dag voru opnuð tilboð í framkvæmdir vegna jarðvinnu og gerð undirstaða Sultartangalínu 3. Útboðið var í þremur hlutum.
Lesa meiraÁ sumrin opnar Landsvirkjun fjölmörg stöðvarhús sín fyrir gestum. Í stöðvunum má skoða afar fjölbreyttar sýningar og kynningar á framkvæmdum fyrirtækisins.
Lesa meiraAð lokinni ítarlegri vinnu viðræðunefndar Landsvirkjunar og Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur náðst samkomulag um tilhögun Norðlingaölduveitu. Lónhæð verður 566 m y.s. að sumarlagi og 567,5 m y.s. að vetrarlagi.
Lesa meiraÍ dag voru námsstyrkir Landsvirkjunar afhentir í fyrsta sinn. Styrkirnir eru ætlaðir til styrktar nemendum í meistara- og doktorsnámi sem eru að vinna að lokaverkefnum sínum. Gert er ráð fyrir því að framvegis verði námsstyrkir Landsvirkjunar afhentir á hverju ári.
Lesa meiraStarfsmenn Landsvirkjunar láta ekki sitt eftir liggja í átakinu ,,Hjólað í vinnuna" sem stendur yfir þessa dagana. Um 110 starfsmenn eru skráðir til þátttöku í 11 liðum á starfsstöðvum fyrirtækisins um allt land.
Lesa meiraLandsvirkjun hefur sent frá sér greinargerð um tilhögun Norðlingaölduveitu. Þar kemur fram að 25 MW dælustöð mun dæla vatni um 7 km langa leið um skurði og jarðgöng. Vatn frá Norðlingaöldu mun sameinast Kvíslaveitu í Illugaveri og renna þaðan til Þórisvatnsmiðlunar.
Lesa meiraÍ dag voru opnuð tilboð í gerð Ufsarveitu sem felst í inntaksstíflu í Jökulsá í Fljótsdal og gerð hluta af aðrennslisgöngum frá inntakinu inn í aðrennslisgöng Kárahnjúkavirkjunar. Lægsta tilboðið átti Arnarfell.
Lesa meiraUmhverfisráðherra hefur kveðið upp úrskurð vegna mats á umhverfisáhrifum vatnsaflsvirkjana í Neðri-Þjórsá. Fallist var á framkvæmdir virkjun við Núp og Urriðafossvirkjun með þeim skilyrðum sem koma fram í úrskurði Skipulagsstofnunar. Umhverfisráðherra bætir í úrskurði sínum nokkrum skilyrðum við. Lesa meira
Fyrsti samningurinn um flutning raforurku sem gerður er í nýju viðskiptaumhverfi raforkumála á Íslandi var undirritaður í dag. Samningurinn er á milli flutningssviðs Landsvirkjunar annars vegar og Hitaveitu Suðurnesja og Orkuveitu Reykjavíkur hins vegar.
Lesa meiraÚrkoma og hlýindi seinustu mánaða hafa gert það að verkum að miðlunarlón Landsvirkjunar eru nánast full. Staðan í vatnsbúskapnum er jafnvel betri en á síðasta ári sem þó var einstakt. Helstu lón Landsvirkjunar eru á vatnasvæðum Þjórsár og Blöndu.
Lesa meiraÍ tilefni af grein Jóhanns Bergþórssonar um útboð og verksamninga við verktaka um byggingu Kárahnjúkavirkjunar sem birtist í Morgunblaðinu í morgun 14. apríl og var til umfjöllunar í fréttatíma Ríkisútvarpsins sama dag vill Landsvirkjun taka fram eftirfarandi:
Lesa meiraJóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem hann skýrir frekar tiltekin ummæli sín á samráðsfundi fyrirtækisins fyrir helgi og dregur þau til baka. Tilefnið eru harkaleg viðbrögð forystumanna Rafiðnaðarsambandsins og Náttúruverndarsamtakanna. Lesa meira
Árlegur samráðsfundur Landsvirkjunar var haldinn í dag á Hótel Nordica í Reykjavík. Á fundinum voru framkvæmdirnar við Kárahnjúka og 100 ára afmæli raforkunnar á Íslandi í miðpunkti.
Lesa meiraÍ fyrirlestri sem Bjarni Bjarnason, framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar, hélt á fyrsta ársfundi Íslenskra orkurannsókna í síðustu viku kom fram að Landsvirkjun hefur sótt um rannsóknaleyfi fyrir Hrafnabjagavirkjun.
Lesa meiraÁrlegur samráðsfundur Landsvirkjunar verður haldinn föstudaginn 2. apríl á Hótel Nordica, í ráðstefnusal A.
Lesa meiraÁ árinu 2003 var hagnaður á rekstri LV 1.551 m.kr. og handbært fé frá rekstri nam 5.601 m.kr. Í árslok námu heildareignir fyrirtækisins 134,5 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall 30,6%.
Lesa meiraLandsvirkjun var í hópi fimm fyrirtækja sem Íslenska óperan gerði samstarfssamning við vegna ferða Óperunnar til Eyjafjarðar og Eskifjarðar á vormisseri 2004.
Lesa meiraLandsvirkjun hefur sett á stofn sjóð til styrktar nemendum á framhaldsstigi háskólanáms (meistara- og doktorsnám) sem eru að vinna að lokaverkefnum sínum og verða styrkir veittir úr sjóðnum árlega.
Lesa meiraSkipulagsstofnun hefur úrskurðað um mat á umhverfisáhrifum Bjarnarflagsvirkjunar og Bjarnarflagslínu 1 í Skútustaðahreppi. Um er að ræða rafstöð allt að 90 MW og 132 kV háspennulínu. Fallist er á framkvæmdina með skilyrðum.
Lesa meiraÍ grein sem birtist í Morgunblaðinu 26. febrúar greinir Bjarni Bjarnason, framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar, frá sjónarmiðum Landsvirkjunar vegna óskar um hækkun stíflu við inntaksmannvirki Laxárstöðva.
Lesa meiraFulltrúar Landsvirkjunar og Suðurverks hf. í Hafnarfirði undirrituðu í dag samning um gerð Sauðárstíflu (KAR-12) og Desjarárstíflu (KAR-13) vegna Kárahnjúkavirkjunar. Samningurinn hljóðar upp á ríflega 2,4 milljarða króna með virðisaukaskatti.
Lesa meiraVið leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að vinna að verkefnum á sviði umhverfismála eða ferðamála í sumar.
Lesa meiraNokkur umræða hefur verið um hugsanlega hækkun inntaksstíflu við Laxárstöðvar í Aðaldal í fjölmiðlum undanfarna daga. Tilefnið er að umhverfisráðherra hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um verndun Mývatns og Laxár.
Lesa meiraBjarni Pálsson, verkfræðingur hjá Landsvirkjun, varði doktorsritgerð sína við Olíuverkfræðistofnun Heriot-Watt háskóla í Edinborg þann 28. janúar síðastliðinn. Ritgerðin nefnist „A study on the Parameters Controlling (Matrix) Injectivity of Produced Water” og fjallar um rannsóknir á þeim þáttum sem ákvarða árangur af niðurdælingu skiljuvatns frá olíuvinnslu í ósprungin berglög.
Lesa meiraLandsvirkjun og Listahátíð í Reykjavík hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að Landsvirkjun styður komu kórs Sankti Basils dómkirkjunnar í Rússlandi til landsins og tónleikahalds í Reykjavík á listahátíðinni 2004.
Lesa meiraÁ þessu ári er þess minnst að liðin eru 100 ár frá því að hafist var handa við að nýta raforku á Íslandi. Þess verður minnst með ýmsum hætti á næstu mánuðum.
Lesa meiraÍ dag gekk í Hæstarétti endanlegur dómur um lögmæti málsmeðferðar við mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar. Staðfesti Hæstiréttur afdráttarlausa niðurstöðu héraðsdóms og hafnaði öllum kröfum stefnenda málsins, Náttúruverndarsamtaka Íslands o.fl., um ógildingu úrskurðar umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar.
Lesa meiraÍ Ríkisútvarpinu 15. janúar kom fram að ASÍ telur að stóriðjuframkvæmdirnar við Kárahnjúka skili sér í mun minna mæli inn í íslenskan vinnumarkað en gert var ráð fyrir í upphafi. Landsvirkjun hefur í tæpt ár bent á það að hlutfall erlends vinnuafls verði verulegt.
Lesa meira