Fréttasafn

Ný stjórn skipuð hjá Landsvirkjun - 28.12.2006

Í samræmi við ný lög um Landsvirkjun var í morgun haldinn aukafundur þar sem skipuð var ný stjórn Landsvirkjunar.

Lesa meira
 

Trúnaður um raforkuverð - 27.12.2006

Í rúman áratug hefur ríkt trúnaður um raforkuverð til stóriðjufyrirtækja. „Eðlilegt er að kallað sé eftir skýringum á því hvers vegna ekki tíðkaðst að upplýsa um verð í samningum íslenskra raforkufyrirtækja og þeirra álfyrirtækja sem hér starfa“, segir Friðrik Sophusson forstjóri Landsvirkjunar

Lesa meira
 

Njóta orkufyrirtækin og stóriðjan forgjafar? - 27.12.2006

Nokkrar umræður hafa orðið um það að undanförnu að stóriðjan og orkuiðnaðurinn njóti forgjafar umfram aðrar atvinnugreinar. Hér á eftir er leitast við að svara algengum spurningum og benda á staðreyndir.

Lesa meira
 

Auglýst eftir umsóknum um styrki vegna meistara- eða doktorsverkefna - 20.12.2006

Landsvirkjun starfrækir sjóð til styrktar nemendum á framhaldsstigi háskólanáms (meistara- og doktorsnám), sem eru að vinna að lokaverkefnum sínum og eru styrkir veittir úr sjóðnum árlega.

Lesa meira
 

Alcan og Landsvirkjun ná samkomulagi um raforkuverð - 15.12.2006

Rannveig Rist og Friðrik Sophusson undirrituðu í dag samkomulag sem framlengir fram á mitt næsta ár viljayfirlýsingu Alcan og Landsvirkjunar um gerð raforkusamnings til stækkunar álversins í Straumsvík.

Lesa meira
 

Vinnuslys við framkvæmdir Kárahnjúkavirkjunar - 15.12.2006

Stjórn Landsvirkjunar lýsir yfir áhyggjum sínum af þróuninni og felur forstjóra að að beina því til verktaka að farið verði í einu og öllu eftir þeim reglum og kröfum sem gerðar eru til öryggis á vinnustað.

Lesa meira
 

Af hverju hætti Norsk Hydro við álver í Reyðarfirði? - 15.12.2006

Í nýlegri grein Bjarne Reinholdt, starfsmanns Norsk Hydro á Íslandi kemur fram hvers vegna fyrirtækið hætti við þátttöku í Reyðarálsverkefninu.

Lesa meira
 

Greint frá virkjunum í Neðri-Þjórsá í nýju fréttabréfi - 14.12.2006

Á næstu misserum mun Landsvirkjun gefa út fréttabréf þar sem sagt er frá framgangi verkefna sem tengjast virkjunum í Neðri-Þjórsá.

Lesa meira
 

Opinber fyrirtæki og stofnanir í orrahríð fjölmiðla - 11.12.2006

Glærufyrirlestur Fririks Sophussonar á fundinum „Opinber fyrirtæki og stofnanir í orrahríð fjölmiðla“.

Lesa meira
 

Hækkun á raforkuverði hjá Orkuveitu Reykjavíkur - 1.12.2006

Í fjölmiðlum hefur komið fram að Orkuveita Reykjavíkur rökstyður gjaldskrárhækkun sína með því að Landsvirkjun hafi hækkað orkuverð um 10% á síðustu tveimur árum. Landsvirkjun telur þessa röksemdafærslu ekki standast.

Lesa meira
 

Stjórn Landsvirkjunar tvöfaldar stuðning sinn við Ómar Ragnarsson - 24.11.2006

Stjórn LV tók fyrir beiðni Ómars Ragnarssonar um stuðning við kvikmyndagerð af myndun Hálslóns á fundi sínum í morgun og samþykkti að tvöfalda stuðning sinn við Ómar úr 4 milljónum króna í 8 milljónir gegn afnotum af kvikmyndaefni hans.

Lesa meira
 

Reykjavík og Akureyri selja ríkinu sinn hlut í Landsvirkjun - 2.11.2006

Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri og Kristján Þ. Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri undirrituðu í gær samning um kaup ríkisins á eignarhlutum Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar í Landsvirkjun.

Lesa meira
 

Landsvirkjun styrkir leiksýningu innflytjenda - 26.10.2006

Landsvirkjun og Rauði þráðurinn hafa undirritað styrktarsamning til uppfærslu á leikverkinu „Best í heimi“.

Lesa meira
 

Orkukostnaður heimila vegna húshitunar lægstur á Íslandi - 20.10.2006

Umtalsverður munur er á orkukostnaði heimila á Norðurlöndum. Eiríkur Bogason, framkvæmdastjóri Samorku segir að íslendingar eigi vinninginn.

Lesa meira
 

Er verð á raforku til almennings á Íslandi hátt? - 17.10.2006

Fyrr í þessum mánuði birtist frétt í Fréttablaðinu þess efnis að raforkuverð til heimila á Íslandi væri hærra á Íslandi en í nágrannalöndum. Orkustofnun sá ástæðu til að gera athugasemd við þessa frétt.

Lesa meira
 

Flatarmál Hálslóns tæplega helmingur af flatarmáli Hvalfjarðar - 16.10.2006

Í umræðum um Kárahnjúkavirkjun hefur stærð Hálslóns oft verið lögð að jöfnu við stærð Hvalfjarðar. Við samanburð á flatarmáli Hálslóns og Hvalfjarðar kemur í ljós að þessi samlíking er ekki rétt.

Lesa meira
 

Ný umhverfisstefna Landsvirkjunar - 11.10.2006

Landsvirkjun hefur unnið samkvæmt umhverfisstefnu allt frá árinu 1997. Í tengslum við innleiðingu ISO 14001 umhverfisstjórnunarkerfis hefur Landsvirkjun endurskoðað umhverfisstefnu sína.

Lesa meira
 

Fylling Hálslóns hafin - 2.10.2006

Síðastliðinn fimmtudag hófst fylling Hálslóns. Þegar lokur í hjáveitugöngum voru látnar síga fyrir göngin breyttist Jökla í uppistöðulón.

Lesa meira
 

Samningur við íslensk/pólska vináttufélagið undirritaður - 18.9.2006

Íslensk/pólska vináttufélagið og Landsvirkjun undirrituðu í dag samstarfssamning sem hefur það að markmiði að kynna pólska menningu á Íslandi og stuðla að skilningi á fjölmenningu í nútímasamfélagi á Íslandi.

Lesa meira
 

Svör Landsvirkjunar við athugasemdum Gríms Björnssonar - 12.9.2006

Í upphafi árs 2002 gerði Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur athugasemdir við ýmsa þætti Kárahnjúkavirkjunar. Í meðfylgjandi fylgiskjali eru svör Landsvirkjunar frá árinu 2003 við athugasemdum Gríms Björnssonar birtar.

Lesa meira
 

Aðgengi að skýrslum Landsvirkjunar - 12.9.2006

Að undanförnu hafa verið miklar umræður um Kárahnjúkavirkjun og málefni tengd henni. Í umræðunni hefur komið fram að rannsóknarskýrslum um Kárahnjúkavirkjun hafi verið haldið leyndum, en sú er ekki raunin.

Lesa meira
 

Skýrslur um stíflurof og viðbragðsáætlun - 6.9.2006

Hér á vefnum eru nú aðgengilegar tvær skýrslur vegna stíflurofs við Kárahnjúkavirkjun. Önnur er endurmat á stærð flóða sem geta orðið við stíflurof. Í þeirri síðari er viðbragðsáætlun vegna rofs stíflna lýst.

Lesa meira
 

Jarðhitarannsóknir á Norðausturlandi - 4.9.2006

Rannsóknir standa nú yfir á jarðhitasvæðum í Bjarnarflagi, á Vestursvæði Kröflu og Þeistareykjum. Markmiðið með rannsóknunum er að auka þekkingu á vinnslugetu svæðanna.

Lesa meira
 

Endurskoðað arðsemismat vegna Kárahnjúkavirkjunar - 29.8.2006

Landsvirkjun hefur að undanförnu unnið að endurskoðun á arðsemismati vegna Kárahnjúkavirkjunar en nú er lokið um 75% af framkvæmdum við virkjunina.

Lesa meira
 

Landsvirkjun og Íslenska óperan endurnýja samstarfssamning - 29.8.2006

Landsvirkjun kemur að kostun á sýningum á óperunni The Rakes Progress eftir Stravinskji.

Lesa meira
 

Afkoma Landsvirkjunar fyrstu 6 mánuði ársins - 29.8.2006

Á fyrstu sex mánuðum ársins 2006 var tap af rekstri Landsvirkjunar 6.490 milljónir króna.

Lesa meira
 

Stjórn Landsvirkjunar fjallar um endurskoðað áhættumat vegna Kárahnjúkavirkjunar - 28.8.2006

Á stjórnarfundi Landsvirkjunar sem lauk fyrr í dag var endurskoðað áhættumat Kárahnjúkavirkjunar til umfjöllunar. Fyrir fundinum lá ennfremur áskorun stjórnar og þingflokks Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um að fresta fyrirhugaðri fyllingu Hálslóns, meðan nýtt áhættumat sé unnið.

Lesa meira
 

Blaðamannafundur um Kárahnjúkastíflu og fyllingu Hálslóns - 22.8.2006

Á blaðamannafundi sem haldinn var í dag kom meðal annars fram að fylling Hálslóns mun hefjast í september eins og upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.

Lesa meira
 

Landsvirkjun styrkir viðgerð rannsóknabáts - 22.8.2006

Báturinn „Jón á ellefu“ sem Pétur M. Jónasson vatnalíffræðingur notaði í áratugi við rannsóknir á lífríki Þingvallavatns verður gerður upp.

Lesa meira
 

Ávirðingar í skjóli fjölmiðils - 22.8.2006

Í kjölfar viðtals Morgunblaðsins við Desiree D. Tullos sá Verkfræðingafélag Íslands ástæðu til þess að senda frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram hörð gagnrýni á Tullos og Morgunblaðið.

Lesa meira
 

Landsvirkjun, Landsnet hf. og Brunavarnir Árnessýslu gera með sér samning - 16.8.2006

Markmið samningsins er að efla bruna- og mengunarvarnir með fræðslu- og forvarnastarfi.

Lesa meira
 

Samið við TM Software um IP símtækni - 15.8.2006

Símstöðvar og búnaðar sem byggir á nýjustu IP símtækni settur upp á Akureyri, í Laxárstöðvum og Fljótsdalsstöð.

Lesa meira
 

Umhverfisáhrif Kárahnjúkavirkjunar, staðreyndir og ýkjur - 11.8.2006

Fyrir skömmu birtist grein í Lesbók Morgunblaðsins eftir Pétur Ingólfsson, verkfræðing. Í greininni fjallaði hann um meðal annars um nokkrar rangfærslur sem komið hafa fram í umræðunni um Kárahnjúkavirkjun.

Lesa meira
 

Breytingar á stjórn Landsvirkjunar - 26.7.2006

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi, hefur tekið sæti í stjórn Landsvirkjunar í stað Helga Hjörvars.

Lesa meira
 

Máttur martraða - 24.7.2006

Síðastliðinn laugardag birtist grein eftir Óskar Valtýsson, fjarskiptastjóra Landsvirkjunar, undir fyrirsögninni „Máttur martraða“ í Lesbók Morgunblaðsins. Í greininni fjallar Óskar um bók Andra Snæs Magnasonar, „Draumalandið“.

Lesa meira
 

Fjármögnun Landsvirkjunar 2006 nærri lokið - 17.7.2006

Landsvirkjun hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 150 milljónir evra undir rammasamningi fyrirtækisins (European Midt Term Notes), sem svarar til um 14,4 milljarða króna.

Lesa meira
 

Sýning á listaverkum tengdum Kárahnjúkavirkjun - 12.7.2006

Landsvirkjun stendur fyrir sýningu á tillögum sem fram komu í samkeppni um listaverk annars vegar við Kárahnjúka og hins vegar við Fljótsdalsstöð. Sýningin fer fram utandyra við ylströndina í Nauthólsvík og við Végarð í Fljótsdal.

Lesa meira
 

Trúnaður um raforkuverð til stóriðju - 29.6.2006

Í tilefni af umræðum um hvort eðlilegt sé að gefa upp verð í samningum um sölu á raforku til stóriðju er vert að huga að hvernig þessum málum hefur verið háttað í gegnum tíðina og hvað tíðkast í slíkum viðskiptum almennt.

Lesa meira
 

Til umhugsunar: - 28.6.2006

Að gefnu tilefni vegna umfjöllunar um finnskan hrossaskít

Lesa meira
 

Dómur um Norðlingaölduveitu - 27.6.2006

Í dag 27. júní 2006 féll dómur í máli Áhugahóps um verndun Þjórsárvera og 7 einstaklinga gegn íslenska ríkinu, Skipulagsstofnun og Landsvirkjun.

Lesa meira
 

Stundar Landsvirkjun ólöglegan innflutning á finnskum hrossaskít? - 22.6.2006

Landsvirkjun fær fjölmargar fyrirspurnir vegan framkvæmdanna við Kárahnjúka. Nýlega barst erindi sem við fyrstu sýn virtist fremur vera sett fram í gríni en alvöru.

Lesa meira
 

Orkuverð til Fjarðaáls - 15.6.2006

Í tilefni þeirrar umræðu sem farið hefur fram um orkuverð til Alcoa skrifaði Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar grein, sem birtist í Morgunblaðinu 15. júní.

Lesa meira
 

15% fjölgun gesta í Végarði - 9.6.2006

Gestum í upplýsingamiðstöð Landsvirkjunar í Végarði í Fljótsdal hefur fjölgað um 15% frá sama tímabili í fyrra.

Lesa meira
 

Rangar upplýsingar um orkuverð á vef Alcoa - 8.6.2006

Á vef Alcoa í Brasilíu voru birtar upplýsingar um raforkuverð til Reyðaráls. Á vefsíðunni kom fram að verðið væri 15 Bandaríkjadalir fyrir megawattið. Grundvallarverðið er hins vegar mun hærra.

Lesa meira
 

Kröfur landeigenda vegna vatnsréttinda Kárahnjúkavirkjunar komnar fram - 8.6.2006

Hæstu kröfur landeigenda nema tæpum 96 milljörðum. Landsvirkjun telur að hæfilegt endurgjald séu 150 - 375 milljónir.

Lesa meira
 

Sýningar opnaðar í Ljósafossstöð - 8.6.2006

Sýningin „Perspekti - Ísland í augum innflytjenda“ verður opnuð í Ljósafossstöð laugardaginn 10. júní. Sýningin er liður í samvinnu Landsvirkjunar og Alþjóðahúss.

Lesa meira
 

Lýsuhólsskóli þakkar fyrir sig - 18.5.2006

Í tilefni lagningar hornsteins Kárahnjúkavirkjunar efndi Landsvirkjun til samkeppni á meðal grunnskólabarna um orku- og orkumál. Bárust mörg efnileg verkefni í samkeppnina og hlutu verkefni 6 þáttakenda viðurkenningu.

Lesa meira
 

Hornsteinn Kárahnjúkavirkjunar lagður - 12.5.2006

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands lagði í dag hornstein að Kárahnjúkavirkjun. 6 börn sem unnu framúrskarandi verkefni um raforku aðstoðuðu við lagningu hornsteinsins.

Lesa meira
 

Samkeppni grunnskólanema um orku- og orkumál - 12.5.2006

Landsvirkjun efndi til samkeppni í vetur þar sem nemendum var boðið að vinna verkefni tengd orkumálum.

Lesa meira
 

Hvað er í blýhólkinum? - 12.5.2006

Í hornsteini aflstöðvar Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal var komið fyrir blýhólki eins og tíðkast hefur í aflstöðvum Landsvirkjunar.

Lesa meira
 

Sjónarmið andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar lögð í hornstein stöðvarhússins - 11.5.2006

Landsvirkjun hefur orðið við þeirri ósk nokkurra náttúruverndarsamtaka að leggja skjal í hornstein aflstöðvar Kárahnjúkavirkjunar þar sem lýst er sjónarmiðum andstæðinga virkjunarinnar. 

Lesa meira
 

Ráðstefna um áhrif loftslagsbreytinga á endurnýjanlega orkugjafa - 11.5.2006

Ráðstefnan verður haldin dagana 5.-9. júní á Nordica hótel í Reykjavík. Landsvirkjun er einn af þeim aðilum sem standa að ráðstefnunni.

Lesa meira
 

Hornsteinn Kárahnjúkavirkjunar - 10.5.2006

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, leggur hornstein að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar á föstudaginn kemur, 12. maí. Athöfnin hefst í stöðvarhúsinu kl. 15:00.

Lesa meira
 

Landsvirkjun stenst ISO 9001 gæðavottun - 9.5.2006

Í janúar 2006 varð vottun á gæðakerfi Landsvirkjunar að veruleika. Vottunin er áfangi í margra ára starfi Landsvirkjunar að gæðamálum.

Lesa meira
 

Andri Snær kynnti Draumalandið í heimsókn hjá Landsvirkjun - 3.5.2006

Andri Snær Magnason þáði boð um að koma á kynningar- og umræðufund með starfsmönnum Landsvirkjunar sl. föstudag til þess að kynna nýútkomna bók sína Draumalandið.

Lesa meira
 

Samstarfssamningur undirritaður við Slysavarnafélagið Landsbjörg - 24.4.2006

Landsvirkjun, Landsnet og RARIK undirrituðu í síðustu viku samkomulag við Slysavarnafélagið Landsbjörg vegna ýmissa verkefna og aðstoðar í vá.

Lesa meira
 

Skrifað undir verksamninga við Arnarfell - 24.4.2006

Landsvirkjun og Arnarfell undirrituðu í síðustu viku samninga um gerð Ufsarstíflu og Hraunaveitu.

Lesa meira
 

Samráðsfundur Landsvirkjunar 2006 - 6.4.2006

Árlegur samráðsfundur Landsvirkjunar var haldinn í dag á Grand Hótel í Reykjavk.

Lesa meira
 

Námsstyrkir Landsvirkjunar afhentir - 6.4.2006

Á samráðsfundi Landsvirkjunar sem fram fór í dag voru afhentir 6 námsstyrkir. Styrkirnir eru ætlaðir til styrktar nemendum í meistara- og doktorsnámi sem eru að vinna að lokaverkefnum sínum.

Lesa meira
 

Ál, orka og andrúmsloft - 6.4.2006

Á samráðsfundi Landsvirkjunar greindu þeir Bjarni Bjarnason, framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar og Pétur Reimarsson, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins frá álframleiðslu í heiminum og útstreymi gróðurhúsalofttegunda.

Lesa meira
 

Landsvirkjun tekur þátt í ræsingu nýs kerskála hjá Norðuráli - 5.4.2006

Norðurál og Landsvirkjun hafa náð samkomulagi um að Landsvirkjun selji Norðuráli skammtímarafmagn á árunum 2006-2008. 

Lesa meira
 

Samráðsfundur Landsvirkjunar - 4.4.2006

Árlegur samráðsfundur Landsvirkjunar fer fram á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún fimmtudaginn 6. apríl.

Lesa meira
 

Um arðsemi Landsvirkjunar - 29.3.2006

Í grein sem birtist í Morgunblaðinu fjallar Stefán Svavarsson, dósent við Háskólann í Reykjavik, um arðsemi Landsvirkjunar og áhættuvarnir fyrirtækisins í fjármálum.

Lesa meira
 

Hver er stærð orkulinda á Íslandi? - 21.3.2006

Nokkur umræða hefur spunnist í fjölmiðlum um hvort rétt sé að stærð orkulindanna á Íslandi sé 50 þúsund gígawattstundir (og þar af vatnsafl 30 þúsund GWst). Fram hafa komið efasemdir um að þessi tala standist og gefið til kynna að hún byggist ekki á haldgóðum rannsóknum.

Lesa meira
 

Gangvirði afleiðusamninga í ársreikningi Landsvirkjunar - 16.3.2006

Þann 14. mars birtist grein eftir Þórólf Matthíasson í Morgunblaðinu með fyrirsögninni „Hvað eru 5,3 milljarðar milli vina?” Hér svarar Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs Landsvirkjunar, Þórólfi og leiðréttir fullyrðingar og misskilning hans.

Lesa meira
 

Orkusalan ehf stofnuð - 15.3.2006

Hinn 10. mars sl. var fyrirtækið Orkusalan ehf. stofnað, en eigendurnir eru þrjú orkufyrirtæki: RARIK, Orkubú Vestfjarða og Landsvirkjun.

Lesa meira
 

Verkefni um orku og orkumál í grunnskólum - 8.3.2006

Enn er mánuður til stefnu til að skila úrlausnum í samkeppnina.

Lesa meira
 

Margar hendur vinna létt verk - 6.3.2006

Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að vinna að verkefnum á sviði umhverfismála eða ferðamála í sumar.

Lesa meira
 

Ársreikningur Landsvirkjunar 2005 - 6.3.2006

Á árinu 2005 var hagnaður á rekstri Landsvirkjunar 6.293 milljónir króna.  Í árslok námu heildareignir fyrirtækisins 182 milljörðum króna og var eiginfjárhlutfall 31,9%.

Lesa meira
 

Leikskólakrakkar færðu Landsvirkjun listaverk - 24.2.2006

Um 60 krakkar frá leikskólanum Álftaborg heimsóttu aðalskrifstofu Landsvirkjunar í dag.

Lesa meira
 

Landsvirkjun og Alþjóðahús í samstarf - 20.2.2006

Alþjóðahús og Landsvirkjun hafa gert með sér samning um að auka umræðu og fjölga viðburðum sem tengjast fjölmenningu á Íslandi.

Lesa meira
 

Gangsetning stækkunar Norðuráls knúin með raforku frá Landsvirkjun - 16.2.2006

Landsvirkjun selur rafmagn til stækkunar Norðuráls allt þar til Reykjanesvirkjun og Hellisheiðarvirkjun taka til starfa.

Lesa meira
 

Jákvæð afstaða til Landsvirkjunar í könnun IMG Gallup - 8.2.2006

Í könnun sem IMG Gallup gerði fyrir Landsvirkjun í desember kom fram að almenningur er jákvæður gagnvart Landsvirkjun.

Lesa meira
 

Landsvirkjun býður sveigjanlega heildsölusamninga og birtir heildsöluverð opinberlega - 3.2.2006

Í kjölfar umræðu um hækkun á raforkukostnaði almennings og neikvæð áhrif markaðsvæðingar á raforkumarkaði að undanförnu vill Landsvirkjun benda á nokkur mikilvæg atriði er varðar raforkusölu fyrirtækisins á almennum markaði.

Lesa meira
 

Athugasemdir vegna greinar um ráðstefnuna Orkulindin Ísland - 3.2.2006

Að lokinni ráðstefnu um ál- og orkuframleiðslu skrifaði Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, grein um ráðstefnuna. Álfheiður Ingadóttir, stjórnarmaður í Landsvirkjun, gerir athugasemd við grein Friðriks og svarar hann Álfheiði.

Lesa meira
 

Á fjórða hundrað þátttakenda sótti ráðstefnuna Orkulindin Ísland - 30.1.2006

Fjallað var um gildi ál- og orkuframleiðslu á fjölsóttri ráðstefnu Samtaka atvinnulífsins, Samorku og Samtökum iðnaðarins á ráðstefnunni Orkulindin Ísland.

Lesa meira
 

Landsvirkjun og Alcan undirrita viljayfirlýsingu - 27.1.2006

Landsvirkjun og Alcan undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um viðræður um raforkusamning fyrir stækkun álversins í Straumsvík.

Lesa meira
 

Samkeppni um orku og orkumál - 26.1.2006

Landsvirkjun hefur nú sent öllum grunnskólum í landinu frekari upplýsingar um samkeppni um verkefni unnin um orku og orkumál.

Lesa meira
 

Erfið staða í fiskeldi ekki af völdum hás raforkuverðs - 23.1.2006

Vegna umræðu í fjölmiðlum um raforkuverð til fiskeldisfyrirtækja vill Landsvirkjun taka fram að fiskeldisfyrirtækjum með sjódælingu hefur um árabil verið veittur afsláttur af rafmagnsverði.

Lesa meira
 

Landsvirkjun leggur Norðlingaölduveitu til hliðar - 23.1.2006

Stjórn Landsvirkjunar samþykkti á fundi í dag að leggja undirbúning Norðlingaölduveitu til hliðar. 

Lesa meira
 

Viðræður við Alcan hefjast vegna stækkunar álvers í Straumsvík - 23.1.2006

Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hafa samþykkt að taka upp einkaviðræður um raforkusamning fyrir stækkun álversins í Straumsvík.  Stefnt er að því að ljúka viðræðum fyrir lok þessa árs. 

Lesa meira
 

Hægt að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar orku - 23.1.2006

Í könnun sem IMG Gallup gerði að beiðni Samtaka atvinnulífsins kemur fram að mikill meirihluti þjóðarinnar telur að hægt sé að sætta sjónarmið umhverfisverndar og virkjunar vatns- og gufuafls.

Lesa meira
 

RARIK, Orkubú Vestfjarða og Landsvirkjun stofna sameiginlegt sölufyrirtæki á raforkumarkaði - 17.1.2006

Stjórnir þessara þriggja fyrirtækja hafa ákveðið að stofna sameiginlegt smásölufyrirtæki á raforkumarkaði.

Lesa meira
 

Upplýsingar um stöðu Norðlingaölduveitu - 10.1.2006

Nokkrar umræður hafa spunnist um Norðlingaölduveitu á undanförnum dögum eftir að umhverfisráðherra vísaði skipulagsmálum vegna veitunnar aftur til skipulagsnefndar miðhálendis. Hér eru birt þrjú skjöl sem sýna stöðu Norðlingaölduveitu, annál veitunnar og skýringarmyndir.

Lesa meira
 

Samkeppni á raforkumarkaði - 5.1.2006

Um þessar mundir eru eflaust mörg fyrirtæki og heimili sem spyrja sig að því hvaða áhrif og möguleikar kunni að felast í þeirri opnun raforkumarkaðar sem átti sér staða um síðustu áramót. Hvaða stöðu hefur Landsvirkjun á íslenskum raforkumarkaði?

Lesa meira
 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica