Fréttasafn

Landsvirkjun kaupir hlut Norðurorku í Þeistareykjum - 30.12.2009

Landsvirkjun og Norðurorka hafa gert samning um kaup Landsvirkjunar á 32% hlut Norðurorku í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. Lesa meira
 

Vefmyndavél á Búrfelli - 17.12.2009

Myndavélinni er beint að Heklu og sýnir hún fjallið og nágrenni þess í beinni útsendingu.

Lesa meira
 

Öryggisstjórnun Landsvirkjunar vottuð samkvæmt OHSAS 18001 - 14.12.2009

Í dag fékk Landsvirkjun afhent vottorð því til staðfestingar að staðallinn OHSAS 18001 hefur verið innleiddur hjá fyrirtækinu.

Lesa meira
 

Fjölmörg tilboð bárust í vinnubúðir - 10.12.2009

11. október auglýsti Landsvirkjun eftir tilboðum í vinnubúðir sem fluttar verða frá virkjunarsvæði Kárahnjúkavirkjunar. Lesa meira
 

Hækkun á heildsölugjaldskrá rafmagns frá Landsvirkjun - 7.12.2009

Um áramótin hækkar heildsöluverð raforku frá Landsvirkjun um 4,4%.

Lesa meira
 

Vel heppnaður fundur um framtíð Norðurlands vestra í Blöndu - 25.11.2009

Meginskilaboð samráðsfundar í tilefni Athafnaviku um „Ný sóknarfæri á Norðurlandi vestra – umhverfi og afurðir“ er að á tímum breytinga þurfi að finna nýjar leiðir til að renna styrkari stoðum undir byggðaþróun. Það snýst um að nýta enn betur auðlindir svæðisins, umhverfi og mannauð, með áherslu á sjálfbærni.

Lesa meira
 

Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar auglýsir styrki til náms og rannsókna á sviði umhverfis- og orkumála - 13.11.2009

Markmið sjóðsins er að veita styrki til námsmanna, rannsóknarverkefna á vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.

Lesa meira
 

Landsvirkjun tekur þátt í Athafnaviku - 13.11.2009

Landvirkjun stendur fyrir fundi fimmtudaginn 19. nóvember í Blöndustöð undir yfirskriftinni „Ný sóknarfæri á Norðurlandi vestra – umhverfi og afurðir“, í samstarfi við Vaxtarsamning Norðurlands vestra.

Lesa meira
 

Kirkjunni að Stóra-Núpi færð gjöf - 6.11.2009

Um síðustu helgi var haldið upp á 100 ára afmæli kirkjunnar að Stóra-Núpi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Af því tilefni var afhent gjafabréf frá Landsvirkjun og sóknarbörnum sem starfa eða hafa starfað við Búfellsstöð. Gjöfin er fólgin í því að kirkjan verður raflýst að utan.

Lesa meira
 

Hvernig hefur skilyrðum umhverfisráðherra vegna Kárahnjúkavirkjunar reitt af? - 5.11.2009

Við mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar heimilaði umhverfisráðherra framkvæmdina að uppfylltum 20 skilyrðum. Nú er framkvæmdum lokið og því áhugavert að skoða hvernig Landsvirkjun uppfyllti skilyrði umhverfisráðherra.

Lesa meira
 

Líklegt að hlaup verði í Jökulsá í Fljótsdal - 3.11.2009

Háöldulón vestan við Eyjabakkajökul hefur fyllst af vatni á undanförnum 2 vikum. Líklegt er að það leiði til hlaups í ánni á næstunni. Mannvirki Landsvirkjunar á svæðinu eru hönnuð með tilliti til slíks atburðar og eru ekki í hættu.

Lesa meira
 

Landsvirkjun gerir samning við Auðlindaréttarstofnun Háskólans í Reykjavík - 2.11.2009

Samningurinn felur í sér að nemendur við Háskólann í Reykjavík geta stundað starfsnám hjá Landsvirkjun

Lesa meira
 

Kárahnjúkastífla hlýtur alþjóðlega viðurkenningu - 29.10.2009

Á fyrstu alþjóðlegu ráðstefnunni um grjótstíflur (rockfill dams), sem haldin var í Chengdu í Kína dagana 18.-20. október sl., hlaut Kárahnjúkastífla viðurkenningu sem tímamótaverk (milestone project).

Lesa meira
 

Styrkir til meistaranáms í vistvænni orkunýtingu með sérhæfingu í vatnsafli - 28.10.2009

Í boði eru styrkir til meistaranáms í endurnýjanlegum orkugjöfum (MSc in Renewable Energy Science) við RES – Orkuskólann. Styrkirnir eru veittir af Landsvirkjun og nema fullum skólagjöldum þeirra sem hyggja á sérhæfingu á vatnsaflsbraut við RES skólaárið 2010 - 2011.

Lesa meira
 

Rangfærslur um stöðu Landsvirkjunar - 28.10.2009

Að undanförnu hefur átt sér stað umræða í samfélaginu, m.a. á Alþingi, um fjárhag og stöðu Landsvirkjunar. Gætt hefur nokkurs misskilnings sem vert er að leiðrétta með því að fjalla um fáein atriði.

Lesa meira
 

Vegir Landsvirkjunar - 22.10.2009

Kort af einkavegum Landsvirkjunar aðgengileg á vefnum

Lesa meira
 

Fjölmörg tilboð bárust í vinnubúðir og rofahús - 20.10.2009

Um miðjan september auglýsti Landsvirkjun eftir tilboðum í vinnubúðir og rofahús sem flutt verða frá virkjunarsvæði Kárahnjúkavirkjunar.

Lesa meira
 

Orkubrunnur á Austurlandi - 12.10.2009

Í tilefni verkloka Kárahnjúkavirkjunar gefur Landsvirkjun út ritið „Orkubrunnur á Austurlandi“. Í því er fjallað um framkvæmdirnar við virkjunina.

Lesa meira
 

Til sölu: Vinnubúðir - 9.10.2009

Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í mötuneyti með svefnálmum og sjúkrabílaskýli sem staðsett eru á virkjunarsvæði Kárahnjúka.

Lesa meira
 

Skýrsla um samfélagsábyrgð - 6.10.2009

Landsvirkjun hefur gefið út skýrslu um samfélagsábyrgð fyrirtækisins sem ætlunin er að verði grunnur að árlegri greinargerð fyrir árangri á því sviði.

Lesa meira
 

Þróun raforkuverðs - 6.10.2009

Einar Mathiesen, framkvæmdastjóri orkusviðs Landsvirkjunar, segir frá þróun raforkuverðs á smásölumarkaði í grein sem birtist á visir.is í dag.

Lesa meira
 

Verklokafagnaður í Fljótsdal - 6.10.2009

Verklokum við Kárahnjúkavirkjun var fagnað við athöfn í Fljótsdalsstöð síðastliðinn föstudag, 2. október.

Lesa meira
 

Lækkandi rafmagnsverð - 24.9.2009

Raforkuverð til almennings á Íslandi hefur lækkað um 34% að raungildi frá 1. janúar 2005.

Lesa meira
 

Mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjunar II - 23.9.2009

Tillaga að matsáætlun

Lesa meira
 

Skýrsla um loftslagsbókhald Landsvirkjunar 2008 - 21.9.2009

Landsvirkjun hefur gefið út loftslagsbókhald 2008 sem ber heitið Kolefnisspor Landsvirkjunar.

Lesa meira
 

Moldrok á Fljótsdalshéraði á upptök sín við Dyngjufjöll - 16.9.2009

Á gervitunglamynd sést hvar upptök moldroksins eru.

Lesa meira
 

Til sölu vinnubúðir og rofahús - 14.9.2009

Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í vinnubúðir og rofahús sem staðsett eru á virkjunarsvæði Kárahnjúka.

Lesa meira
 

Samningar Landsvirkjunar við sveitarfélög - 11.9.2009

Í Morgunblaðinu þann 11. september birtist grein eftir Friðrik Sophusson þar sem hann fjallar um aðkomu Landsvirkjunar að skipulagsmálum í sveitarfélögum.

Lesa meira
 

Yfirlýsing oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps - 4.9.2009

Vegna frétta um greiðslur Landsvirkjunar til sveitarstjórnarmanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hefur oddviti hreppsins sent frá sér yfirlýsingu.

Lesa meira
 

Vatn fer að renna um fossinnn Hverfanda - 3.9.2009

Nú eru öll lón Landsvirkjunar að fyllast. Þetta gerist heldur seinna en gert var ráð fyrir, enda hefur veðrátta í sumar verið óhagstæð fyrir vatnssöfnun hjá Landsvirkjun.

Lesa meira
 

Greiðslur Landsvirkjunar í samræmi við lög og eðlilega stjórnsýslu - 3.9.2009

Landsvirkjun vísar á bug getgátum sem fram hafa komið í fréttum fjölmiðla um óeðlilegar greiðslur fyrirtækisins til sveitarfélagsins Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna vinnu við breytingar á skipulagi út af virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Lesa meira
 

Samorka gerir athugasemdir við skýrslu um arðsemi orkusölu - 2.9.2009

Á vef Samorku kemur fram að ágæt arðsemi sé af orkusölu hér á landi öfugt við það sem kemur fram í nýlegri áfangaskýrslu Sjónarrandar.

Lesa meira
 

Stýring á rennsli í Jökulsá í Fljótsdal - 25.8.2009

Af gefnu tilefni er ástæða til að benda á að Landsvirkjun hefur í hvívetna farið eftir þeim reglum sem gilda um stýringu á rennsli vatns um Jökulsá í Fljótsdal frá Hraunaveitu en sú stýring hefur áhrif á vatnsmagn í fossum í ánni. Lesa meira
 

Afkoma Landsvirkjunar fyrstu sex mánuði ársins 2009 - 21.8.2009

Samkvæmt rekstrarreikningi samstæðunnar nam hagnaður fyrstu sex mánuði ársins 2009 tæplega 47,3 milljónum USD eða um 6 milljörðum króna á núverandi gengi.

Lesa meira
 

Kynningarfundur vegna mats á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra borana í Gjástykki - 14.8.2009

Opið hús verður haldið að Breiðumýri í Reykjadal þriðjudaginn 18. ágúst nk. frá kl. 16:00.

Lesa meira
 

Nýr forstjóri Landsvirkjunar ráðinn - 13.8.2009

Stjórn Landsvirkjunar hefur ráðið Hörð Arnarson sem forstjóra Landsvirkjunar og hefur hann störf eigi síðar en 1. janúar 2010.

Lesa meira
 

Fyrsti laxinn úr Jökuldalnum - 12.8.2009

Í fyrradag veiddist fyrsti laxinn í Jökuldalnum. Frá þessu segir á vef veiðiþjónustunnar Strengir. Lesa meira
 

Enn um Folavatn - 31.7.2009

Fiskur farinn að veiðast í Folavatni

Lesa meira
 

Rannsóknaboranir í Gjástykki, Þingeyjarsveit - 15.7.2009

Landsvirkjun fyrirhugar boranir allt að þriggja rannsóknaborhola á einum borteig í Gjástykki í Þingeyjarsveit.

Lesa meira
 

Standard & Poor's lækkar lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar - 30.6.2009

Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur breytt aðferðafræði varðandi mat á lánshæfi fyrirtækja í eigu opinberra aðila (“Government Related Corporates”).

Lesa meira
 

Borað niður í kviku í Kröflu - 25.6.2009

Tilraun til djúpborunar í Kröflu hefur staðið síðan í mars. Í gærdag var borað niður í bráðið berg á 2.104 m dýpi.

Lesa meira
 

Landsvirkjun og ríkið gera viðbúnaðarsamning - 19.6.2009

Vegna hinnar miklu óvissu sem ríkt hefur í efnahagslífinu hafa Landsvirkjun og ríkið gert með sér viðbúnaðarsamning.

Lesa meira
 

Blöndustöð vinnustaður vikunnar - 15.6.2009

Fyrir skömmu útnefndi héraðsfréttablaðið Feykir Blöndustöð vinnustað vikunnar.

Lesa meira
 

Hækkun á heildsölugjaldskrá rafmagns frá Landsvirkjun - 4.6.2009

Þann 1. júlí næstkomandi hækkar heildsöluverð raforku frá Landsvirkjun um 7,5%.

Lesa meira
 

Kárahnjúkavirkjun 7% fram úr kostnaðaráætlun - 3.6.2009

Landsvirkjun stendur við fyrri yfirlýsingar um að Kárahnjúkavirkjun hafi farið 7% fram úr kostnaðaráætlun.

Lesa meira
 

Starfsmenn Landsvirkjunar og LV Power kenna á sumarnámskeiði við Háskóla Íslands - 27.5.2009

Námskeiðið sem stendur yfir þessa dagana nefnist "Orka, umhverfi og nytjar" og stendur nemendum Háskóla Íslands til boða.

Lesa meira
 

Nýr stöðvarstjóri á Mývatnssvæði - 14.5.2009

Steinn Ágúst Steinsson hefur verið ráðinn stöðvarstjóri á Mývatnssvæði með starfsstöð í Kröflu.

Lesa meira
 

Raforkuverð til álfyrirtækja - 29.4.2009

Í þessari grein rekur Friðrik Sophusson ástæður þess að raforkuverð til stóriðju er ekki gert opinbert.

Lesa meira
 

GPS staðsetning hreindýra - 17.4.2009

Landsvirkjun styður nýstárlegar hreindýrarannsóknir Náttúrustofu Austurlands. Með GPS tækni er fylgst með hreyfingum hreindýra.

Lesa meira
 

HydroKraft Invest - 15.4.2009

Í kvöldfréttum RÚV og Stöðvar 2 í gær var fjallað um tilurð helmingafélags Landsvirkjunar Power (LVP) og Landsbankans, HydroKraft Invest (HKI). Ýjað er að því að stofnun og starfsemi þess félags geti tengst fjárstyrk Landsbankans til Sjálfstæðisflokksins.

Lesa meira
 

Sultartangastöð komin í fullan rekstur - 15.4.2009

Báðir spennar Sultartangastöðvar eru komnir aftur í rekstur. Vélaspennir við vél eitt var settur inn rétt fyrir páska eftir gagngerða endurnýjun sem fram fór hjá ABB í Drammen í Noregi.

Lesa meira
 

Sterk fjárhagsstaða Landsvirkjunar - 8.4.2009

Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, skrifar grein í Morgunblaðið í dag um fjárhagsstöðu Landsvirkjunar.

Lesa meira
 

Lítil þensluáhrif Kárahnjúkavirkjunar - 7.4.2009

Í grein sem Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, skrifar segir hann að verðbólgan hafi fyrst og fremst verið drifin áfram af hækkun fasteignaverðs á sama tímabili sem Kárahnúkavirkjun var í byggingu.

Lesa meira
 

Ný stjórn Landsvirkjunar - 3.4.2009

Á aðalfundi Landsvirkjunar sem fram fór í dag var kjörin ný stjórn fyrirtækisins til eins árs.

Lesa meira
 

Traust fjárhagsstaða Landsvirkjunar - 1.4.2009

Í tilefni af fréttum RÚV um hæfi Landsvirkjunar til að greiða af lánum sínum vill fyrirtækið taka fram að fjárhagsstaða þess er afar traust.

Lesa meira
 

Landsvirkjun styrkir ekki stjórnmálaflokka - 25.3.2009

Í einni af fréttum um fjármál stjórnmálaflokka kom fram að Landsvirkjun hefði styrkt Sjálfstæðisflokkinn um kr. 9.633.

Lesa meira
 

Afkoma Landsvirkjunar árið 2008 - 20.3.2009

Ársreikningur Landsvirkjunar var í dag, 20. mars 2009, samþykktur á fundi stjórnar.

Lesa meira
 

Styrkir úr orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar afhentir - 17.3.2009

Í dag úthlutaði Landsvirkjun 46 milljónum króna í náms- og verkefnastyrki.

Lesa meira
 

Ágreiningsmálaráð notað í fyrsta skipti við framkvæmdir á Íslandi - 16.3.2009

Tímaritsgrein birt um fyrsta ágreiningsmálaráð á Íslandi.

Lesa meira
 

Staða miðlunarforða Landsvirkjunar - 16.3.2009

Þar sem orkuvinnsla í Fljótsdalsstöð er nú með fullum afköstum eru meiri breytingar á vatnsborði Hálslóns nú en í fyrra vetur.

Lesa meira
 

Margar hendur vinna létt verk - 16.3.2009

Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem ætla að vinna að verkefnum á sviði umhverfismála eða ferðamála í sumar.

Lesa meira
 

Landsvirkjun og RES Orkuskóli gera með sér samstarfssamning - 11.3.2009

Landsvirkjun og RES Orkuskóli undirrita samstarfssamning á sviði orkurannsókna og kennslu til tveggja ára.
Lesa meira
 

Um dómsmál vegna bóta út af Kárahnjúkavirkjun - 11.3.2009

Einhliða fréttaflutningur RÚV vegna dómsmála um vatnsréttindi og vatnaflutninga.

Lesa meira
 

Ófærð og hættur við Hálslón og Kárahnjúka - 5.3.2009

Að gefnu tilefni vill Landsvirkjun benda þeim sem hyggja á ferðir inn á Snæfellsöræfi á að hættulegt er að fara út á ísinn á Hálslóni og að fólki er ráðið frá því að reyna að fara yfir Kárahnjúkastíflu. Þar er fannfergi mikið og hætta á snjóflóðum og hruni úr Kárahnjúk.

Lesa meira
 

Landsvirkjun styður Bóka- og skjalasafn Húnaþings vestra á Hvammstanga - 27.2.2009

Mánudaginn 23. febrúar undirrituðu Sigríður Tryggvadóttir, yfirmaður safnsins og Friðrik Sophusson  samstarfssamning.
Lesa meira
 

Kolefnisspor Landsvirkjunar - 25.2.2009

Landsvirkjun hefur gefið út loftslagsbókhald fyrir árið 2007 sem ber heitið Kolefnisspor Landsvirkjunar.

Lesa meira
 

Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum vegna álvers, jarðhitavirkjana og háspennulína - 20.2.2009

Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka.

Lesa meira
 

Drög að tillögu að matsáætlun vegna Kröfluvirkjunar II - 20.2.2009

Landsvirkjun áformar að reisa allt að 150 MWe  jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi, í Þingeyjarsýslu.
Lesa meira
 

Veðurómur - útvarpslistaverk við Fljótsdalsstöð - 26.1.2009

Listaverkið Veðurómur er eftir Helga Kristinsson. Ásamt fjórum öðrum verkum bar Veðurómur sigur úr býtum í listaverkasamkeppni sem Landsvirkjun efndi til á meðan á byggingu Kárahnjúkavirkjunar stóð.

Lesa meira
 

Iðnaðarhúsnæði óskast - 19.1.2009

Landsvirkjun óskar eftir að taka á leigu iðnaðarhúsnæði í austurhluta höfuðborgarsvæðisins. Húsnæðið þarf að hafa rúmgóða innkeyrslu og gott aðgengi.
Lesa meira
 

Sumarvinna 2009 - 8.1.2009

Ár hvert auglýsir Landsvirkjun fjölbreytt störf í sumarvinnu fyrir unglinga og háskólanema.

Lesa meira
 

Útleysing í Fljótsdalsstöð á nýársnótt – oft veltir lítil þúfa þungu hlassi - 7.1.2009

Fljótsdalsstöð leysti út þegar nokkrar mínútur voru liðnar af nýárinu. Svonenfnd hlaupsekúnda truflaði raforkuvinnslu í Fljótsdalsstöð.
Lesa meira
 

Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica