Greiðslur Landsvirkjunar í samræmi við lög og eðlilega stjórnsýslu
Samkvæmt 23. grein skipulags- og byggingarlaga er framkvæmdaraðila heimilt að gera tillögu til sveitarstjórnar að breyttu deiliskipulagi á sinn kostnað. Af þessum sökum hefur Landsvirkjun víðast hvar þar sem virkjunaráform eru uppi og unnið hefur verið að skipulagsmálum þeim tengdum gert rammasamning við sveitarstjórnir sem m.a. lýtur að greiðslu til sveitarfélagsins vegna vinnu umfram almenna stjórnsýslu. Það er eðlilegt að verulega aukinn kostnaður vegna umfangsmikillar skipulagsvinnu sé greiddur af þeim sem fer fram á þá vinnu.
Þannig greiddi Landsvirkjun Skeiða- og Gnúpverjahreppi um 11 milljónir króna seint á síðasta ári vegna skipulagsvinnu vegna virkjunaráforma í hreppnum. Stór hluti af þeirri tölu var vegna vinnu sérfræðinga. Einnig voru þar greiðslur fyrir sérstaka vinnufundi með Landsvirkjun eða vegna hennar sem ella hefðu ekki farið fram á vegum sveitarfélagsins. Greiðsla þessi fór frá Landsvirkjun til sveitarfélagsins en ekki til einstaklinga sem eru í sveitarstjórn eða starfa fyrir sveitarfélagið.
Benda má á að skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum greiðir framkvæmdaraðili fyrir vinnu Skipulagsstofnunar við að úrskurða um matið og við stórar framkvæmdir (t.d. Kárahnjúkavirkjun) greiðir framkvæmdaaðili fyrir stjórnsýslu á borð við heilbrigðiseftirlit og eftirlit Umhverfisstofnunar.
