Fréttasafn
Vatn fer að renna um fossinnn Hverfanda
Nú eru öll lón Landsvirkjunar að fyllast. Þetta gerist heldur seinna en gert var ráð fyrir, enda hefur veðrátta í sumar verið óhagstæð fyrir vatnssöfnun hjá Landsvirkjun.
Reiknað er með að Hálslón fyllist nú um helgina og þá mun vatn renna á yfirfalli um fossinn Hverfanda og niður farveg Jökulsár á Dal.
Meðfylgjandi mynd sýnir að örlítið vantar upp á að vatn fari um yfirfallið.
Hægt er að fylgjast með vatnshæð Hálslóns með því að smella á hnapp á síðu Fljótsdalsstöðvar hægra megin.

