Yfirlýsing oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Vegna frétta um greiðslur Landsvirkjunar til sveitarstjórnarmanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi hefur oddviti hreppsins sent frá sér yfirlýsingu.
Landsvirkjun greiddi engar greiðslur til sveitarstjórnarmanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Vegna fréttaflutnings af greiðslum Landsvirkjunar til Skeiða- og Gnúpverjahrepps er nauðsynlegt að árétta að Landsvirkjun greiddi engar greiðslur til sveitarstjórnarmanna sveitarfélagsins.
Í samræmi við samkomulag Landsvirkjunar og sveitarfélagsins greiddi Landsvirkjun allan útlagðan kostnað vegna aðalskipulagsbreytingarinnar en vinna við hana var mjög umfangsmikil eins og gefur að skilja. Skipulagsbreytingin var eingöngu gerð að beiðni Landsvirkjunar og vegna fyrirhugaðra virkjanaáforma. Ekki er því óeðlilegt að Landsvirkjun greiddi þann kostnað sem af breytingunni hlaust. Ótækt er að velta kostnaði af verkefnum af þessari stærðargráðu yfir á íbúa viðkomandi sveitarfélags.
Hvað varðar greiðslur til sveitarstjórnarmanna í Skeiða- og Gnúpverjahrepp þá krafði sveitarfélagið, í samræmi við samkomulag, Landsvirkjun m.a. um greiðslu á þeim kostnaði sem sveitarfélagið hafði orðið fyrir vegna lögbundinna greiðslna fyrir fundarsetu sveitarstjórnarmanna. Um var að ræða greiðslur fyrir aukafundi og vinnufundi sem eingöngu voru haldnir vegna aðalskipulagsbreytingarinnar. Fráleitt er því að ýja að því að borið hafi verið fé á sveitarstjórnarmenn.
Tekið skal fram að öll gögn um mál þetta eru opinber. Fylgja þau helstu með yfirlýsingu þessari fréttamönnum til upplýsingar og glöggvunar. Vegna ummæla fyrrverandi sveitarstjóra er rétt að fréttamenn hafi í huga að hann var látinn hætta hjá sveitarfélaginu.
Árnes, 3. september 2009.
Virðingarfyllst,
Gunnar Örn Marteinsson, oddviti og sveitarstjóri
Úr frétt á mbl.is 3/9‘09
