Til sölu vinnubúðir og rofahús
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í vinnubúðir og rofahús sem staðsett eru á virkjunarsvæði Kárahnjúka.
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í vinnubúðir og rofahús sem staðsett eru á virkjunarsvæði Kárahnjúka.
- 259 m² þjónustumiðstöð. Í þjónustumiðstöðinni er matsalur fyrir 40 manns, eldhús, kælir, frystir, salerni og aðstaða fyrir greiðasölu er í enda hússins, staðsetning hússins er við Desjarárstíflu. Húsið verður selt í einu lagi.
- 111 m² skrifstofuhús með extra salernishúsi við enda hússins, staðsetning hússins er við Desjarárstíflu. Húsið verður selt í einu lagi.
- 297 m² svefnskáli með 20 einstaklings svefnherbergjum með baði og sameiginlegri setustofu og með 22 m2 forstofu, staðsetning hússins er við Ufsarstíflu. Húsið verður selt í einu lagi.
- 14 stakir 11,7 m² svefnskúrar. Húsin eru staðsett á Bessastöðum í Fljótsdal. Húsin verða seld ein og sér eða öll saman.
- 4 Rofahús, hvert hús er 34 m². Húsin eru byggð á trégrind, einangruð og bárujárnsklædd. Húsin eru staðsett á eftirtöldum stöðum: 1 hús á Hvammseyri í Fljótsdal, á Fljótsdalsheiði; 1 hús við aðkomugöng 1, 1 hús við aðkomugöng 2 og 1 hús við aðkomugöng 3.
Vinnubúðirnar og rofahúsin verða til sýnis á þeim stöðum sem tilgreindir eru hér að ofan, dagana 16. og 17. september nk. frá kl. 10:00 – 17:00 báða dagana.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurmann í síma 893 1490.
Myndir ásamt teikningum af húsunum verða birtar á heimasíðu Landsvirkjunar www.landsvirkjun.is frá og með þriðjudeginum 15.september 2009.
Tilboð skulu gerð á þar til gerðu tilboðsblaði sem hægt er að nálgast í afgreiðslu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík og á heimasíðu Landsvirkjunar www.landsvirkjun.is.
Brottflutningur og öll gjöld sem þarf að greiða vegna þessa verks eru á kostnað kaupanda og skulu innifalin í tilboðsfjárhæð.
Tilboðsverð skulu miðast við staðgreiðslu.
Frestur til að skila tilboðum rann út þriðjudaginn 22. september kl. 14:00.
Landsvirkjun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
