Moldrok á Fljótsdalshéraði á upptök sín við Dyngjufjöll
Á gervitunglamynd sést hvar upptök moldroksins eru.
Fréttir bárust af miklu moldroki á Fljótsdalshéraði í gær 15. september. Það mátti sjá af viðbrögðum lesenda við þeim fregnum að sumum varð hugsað til Kárahnjúkavirkjunar og að upptök sandfoksins væru að líkindum í og við Hálslón. Svo er alls ekki því Hálslón er fullt um þessar mundir.
Á gervitunglamyndinni af landinu hér að neðan sjást upptök moldroksins í gær svo ekki verður um villst. Á henni kemur fram að upptökin eru langt vestan við Hálslón og víða um hálendið. Þetta mikla fok og ljósmyndin utan úr geimnum minnir enn einu sinni á að uppfokið er stærsti umhverfisvandi á Íslandi.
Landsvirkjun hefur um árabil verið einn helsti samstarfsaðili Landsgræðslunnar í báráttunni við gróðureyðingu og uppblástur.
Myndin er frá Terra gervitungli NASA og þær eru kallaðar MODIS myndir (ein á dag).
Landsvirkjun fylgist með þessum myndum og mælir fallryk á fjölmörgum mælistöðum á Austurlandi.
Smellið á myndina til að sjá hana í fullri stærð.

