Fréttasafn
  • Veðurmynd úr Terra gervihnetti 15. sept. 2009

Skýrsla um loftslagsbókhald Landsvirkjunar 2008

21.9.2009

Landsvirkjun hefur gefið út loftslagsbókhald 2008 sem ber heitið Kolefnisspor Landsvirkjunar.

Þetta er annað árið sem Landsvirkjun gefur út loftslagsbókhald fyrir starfsemi sína og vill hún með þessu sýna fordæmi þeim sem vilja halda bókhald um kolefnislosun sína.

Stefnt er að því að gera starfsemi Landsvirkjunar kolefnishlutlausa.

Vakin er sérstök athygli á eftirfarandi atriðum í skýrslunni:

  • Heildarlosun frá starfsemi Landsvirkjunar er ígildi tæplega 76.000 tonna af CO2. Er þá bæði talin með losun vegna brennslu jarðefnaeldsneytis, losun frá lónum vatnsaflvirkjana og útstreymi frá gufuaflsvirkjunum, en hluti af því útstreymi er náttúrlegt úrstreymi frá jarðhitasvæði. Þessi heildarlosun Landsvirkjunar er um 1,3% af heildarlosun Íslands eins og hún er gefin upp í útstreymisbókhaldi landsins. Þetta er athyglisvert út frá þeirri staðreynd að Landsvirkjun framleiðir yfir 70% af raforku landsins.
  • Losun vegna brennslu jarðefnaeldsneytis hjá Landsvirkjun er ígildi tæplega 1.400 tonna af CO2. Þá er talin öll losun frá farartækjum og vélum fyrirtækisins ásamt losun vegna flugferða starfsmanna.
  • Raforkuvinnsla í vatnsaflsvirkjunum Landsvirkjunar losar um á bilinu 450-900 sinnum minna af gróðurhúsalofti á orkueiningu en kolaorkuver. Fyrir jarðhitavirkjanir Landsvirkjunar er þessi tala 9 sinnum lægri en í kolaorkuveri (sjá bls. 9 og 17 í skýrslunni).
  • Með tilkomu Hálslóns hefur losun frá lónum aukist um 90% en rannsóknir sýna jafnframt að losun gróðurhúsalofts úr lónum fyrirtækisins er einungis um 30% af því sem alþjóðleg viðmið gera ráð fyrir (sjá bls. 10 og 11 í skýrslunni).
  • Þá kemur fram að rannsóknir sýna að ræktun og uppgræðsla sem Landsvirkjun hefur staðið að á undanförnum árum bindur um 68% af því kolefni sem losnar vegna raforkuvinnslu í vatnsaflsstöðvum fyrirtækisins (sjá bls. 16 og 17).

Landsvirkjun er með vottað umhverfisstjórnunarkerfi skv. ISO 14001 og heldur grænt bókhald. Skýrslan er nú einnig gefin út á ensku.

Viðhengi:
Kolefnisspor Landsvirkjunar 2008

 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica