Mat á umhverfisáhrifum Kröfluvirkjunar II
Tillaga að matsáætlun
Landsvirkjun áformar að reisa allt að 150 MWe jarðhitavirkjun við Kröflu í Skútustaðahreppi, í Þingeyjarsýslu.
Framkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matsvinnan er hafin og má nálgast tillögu að matsáætlun hér á síðunni.
Í tillögunni er fyrirhugaðri framkvæmd og framkvæmdasvæði lýst. Fjallað er um þá umhverfisþætti sem teknir verða fyrir í matinu. Einnig er tilgreint hvaða gögn eru fyrir hendi sem nýtt verða við matið og hvaða rannsóknir er fyrirhugað að ráðast í vegna mats á umhverfisáhrifum.
Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir til Skipulagsstofnunar.
Frestur til að gera athugasemdir er til 12. október 2009.
Viðhengi:
Tillaga að matsáætlun Kröfluvirkjunar II
