Fréttasafn

Álver, jarðhitavirkjanir og háspennulínur - Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum

23.9.2009

Tillaga að matsáætlun

Alcoa, Þeistareykir ehf., Landsvirkjun og Landsnet hf., standa að sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka. Fyrirhugaðar framkvæmdir eru í Norðurþingi, Þingeyjarsveit og Skútustaðahreppi.

Samkvæmt úrskurði umhverfisráðherra frá 31. júlí 2008 eru framkvæmdirnar háðar sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum, í samræmi við 2. mgr. 5. greinar í lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000. Matið nær til fjögurra ofangreindra framkvæmda.

Tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum verkefnanna fjögurra var skilað inn til Skipulagsstofnunar 23. september samhliða nýjum tillögum að matsáætlunum fyrir Þeistareykjavirkjun og Kröfluvirkjun II. Skipulagsstofnun hefur þegar fallist á matsáætlun Landsnets fyrir háspennulínur að Bakka og matsáætlun Alcoa fyrir álver á Bakka.

Allir hafa rétt til að kynna sér tillögu að matsáætlun og leggja fram athugasemdir. Senda skal skriflegar athugasemdir til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166 í Reykjavík.

Hægt er að nálgast tillögu að matsáætlun fyrir sameiginlegt mat hér á síðunni.

Einnig eru tenglar inn á heimasíður viðkomandi fyrirtækja þar sem nálgast má matsáætlanir fyrir framkvæmdirnar fjórar.

 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica