Verklokafagnaður í Fljótsdal
Verklokum við Kárahnjúkavirkjun var fagnað við athöfn í Fljótsdalsstöð síðastliðinn föstudag, 2. október.
Viðstaddir voru gestir úr héraði og að sunnan auk stjórnenda og starfsmanna Landsvirkjunar. Þrír iðnaðarráðherrar voru meðal annars þarna mættir, þ.e. Katrín Júlíusdóttir, núverandi iðnaðarráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra, og svo Friðrik Sophusson, sem sömuleiðis er fyrrverandi iðnaðaráðherra og var þarna að ljúka síðasta vinnudegi sínum sem forstjóri Landsvirkjunar.
Guðmundur Pétursson verkefnisstjóri stjórnaði samkomunni sem bæði var í tali og tónum. Ávörp fluttu Friðrik Sophusson, Katrín Júlíusdóttir, Jóhann Þórhallsson, varaoddviti í Fljótsdal og Smári Geirsson, bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð. Séra Lára Oddsdóttir sóknarprestur minntist þeirra sem létust við störf sín á framkvæmdatímanum og Agnar Olsen, starfandi forstjóri Landsvirkjunar, afhenti Björgunarsveitinni Héraði og Björgunarsveitinni Jökli fjárstyrki, eina milljón króna hvorri sveit. Karlakórinn Drífandi á Héraði flutti nokkur lög og fór á kostum, bæði í flutningi og í kynningu dagskrárefnis síns.
Katrín Júlíusdóttir notaði tækifærið til að þakka Friðriki Sophussyni fyrir gott starf í þágu Landsvirkjunar, sama gerðu Smári Geirsson og Jóhann Þórhallsson. Sá síðastnefndi færði Friðriki jafnframt forláta handunna gestabók að skilnaði frá Fljótsdalshreppi. Þá barst Fljótsdalsstöð dýrindis blómakarfa í tilefni dagsins frá Verkís verkfræðistofu.
Athöfninni lauk með því að Guðmundur Pétursson verkefnisstjóri og Georg Þór Pálsson, stöðvarstjóri í Fljótsdal, afhjúpuðu upplýsingaskilti um framkvæmdirnar framan við Fljótsdalsstöð.
Á verklokadaginn gaf Landsvirkjun út Orkubrunn á Austurlandi, svipmyndir úr sögu Kárahnjúkavirkjunar, 140 blaðsíðna ríkulega myndskreytt rit sem dreift var í hús á Miðausturlandi og víðar. Í inngangi ritnefndar er Orkubrunninum fylgt úr hlaði meðal annars með eftirfarandi orðum:
Nú eru kaflaskil og framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun er lokið. Landsvirkjun þykir við hæfi að minnast tímamótanna með því að taka saman fróðleik í máli og myndum um merkilega framkvæmd. Þetta er ekki pólitísk átakasaga heldur miklu frekar ágrip af framkvæmdasögu, mismunandi viðhorfum og mannlífsmyndum.
Viðhengi:
Orkubrunnur á Austurlandi - Svipmyndir úr sögu Kárahnjúkavirkjunar
Friðrik Sophusson, fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar, Agnar Olsen, starfandi forstjóri
Landsvirkjunar og Hörður Arnarson, nýráðinn forstjóri Landsvirkjunar
Valgerður Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráðherra, Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og
Friðrik Sophusson, fyrrverandi forstjóri Landsvirkjunar og fyrrum iðnaðarráðherra.
Fulltrúar björgunarsveitanna Jökuls og Héraðs taka við styrk úr hendi Agnars Olsen.
