Skýrsla um samfélagsábyrgð
Landsvirkjun hefur gefið út skýrslu um samfélagsábyrgð fyrirtækisins sem ætlunin er að verði grunnur að árlegri greinargerð fyrir árangri á því sviði.
Skýrslan er unnin á grundvelli viðmiða sem er að finna í drögum að alþjóðlega staðlinum ISO 26000 fyrir samfélagsábyrgð fyrirtækja.
Greint er frá árangri Landsvirkjunar með tilliti til efnahags, umhverfis og samfélags og eru efninu skipað í kafla sem fjalla um fyrirtækið, starfsfólkið, umhverfið, samfélagið og rafmagnið sem Landsvirkjun framleiðir. Hægt er að fá skýrslun a senda endurgjaldslaust meðan upplagið endist með því að senda tölvupóst á thorey hjá lv.is.
Viðhengi:
Skýrsla um samfélagsábyrgð Landsvirkjunar
