Fréttasafn

Til sölu: Vinnubúðir

9.10.2009

Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í mötuneyti með svefnálmum og sjúkrabílaskýli sem staðsett eru á virkjunarsvæði Kárahnjúka.

  1. 665 m2 mötuneytis- og svefnálmur. Í húsinu eru 30 svefnherbergi, setustofa og matsalur fyrir 40 manns, eldhús, kælir, frystir, salerni og sána. Staðsetning  hússins er við Kelduárstíflu. Húsið verður selt í einu lagi.
  2. 40 m2 hús sem notað hefur verið sem sjúkrabílageymsla. Staðsetning hússins er við Ufsarstíflu. Húsið verður selt í einu lagi.

Vinnubúðirnar verða til sýnis á þeim stöðum sem tilgreindir eru hér að ofan, dagana 21 og 22 október nk. frá kl. 10:00 – 17:00 báða dagana.

Allar nánari upplýsingar gefur Sigurmann í síma 893 1490.

Myndir ásamt teikningum af húsunum verða birtar á heimasíðu Landsvirkjunar frá og með mánudeginum 12.október 2009.

Tilboð skulu gerð á þar til gerðu tilboðsblaði sem hægt er að nálgast í afgreiðslu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, Reykjavík og á heimasíðu Landsvirkjunar.

Brottflutningur og öll gjöld sem þarf að greiða vegna þessa verks eru á kostnað kaupanda og skulu innifalin í tilboðsfjárhæð.

Tilboðsverð skulu miðast við staðgreiðslu.

Tilboðum skal skila í afgreiðslu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík merkt ”Innkaupadeild – Vinnubúðir” í síðasta lagi kl. 14:00 þriðjudaginn 27.október 2009.

Landsvirkjun áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Viðhengi:
Teikning og myndir af mötuneyti og svefnálmu
Teikning og myndir af sjúkrabílaskýli
Tilboðseyðublað

 

Senda grein

Skoða fréttir eftir árum


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica