Orkubrunnur á Austurlandi
Í tilefni verkloka Kárahnjúkavirkjunar gefur Landsvirkjun út ritið „Orkubrunnur á Austurlandi“. Í því er fjallað um framkvæmdirnar við virkjunina.
Kárahnjúkavirkjun er umfangsmesta verkefnið sem Landsvirkjun hefur tekist á hendur. Framkvæmdin var því ríkur þáttur í starfsemi fyrirtækisins allan þann áratug sem er að líða og jafnframt fyrirferðarmikil í samfélagsumræðunni. Verkefnið var margþætt og að því hefur komið fjöldi fólks svo nemur þúsundum úr ýmsum starfsgreinum og frá fjölmörgum þjóðlöndum.
Kárahnjúkavirkjun varð tilefni langvinnra umræðna og harkalegra deilna í þjóðfélaginu. Þá reyndi mjög á Landsvirkjun og starfsmenn fyrirtækisins sem stóðu í eldlínu átaka en urðu um leið að leysa margvísleg vandamál sem fylgdu sjálfum framkvæmdunum, bæði tæknileg, efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg.
Nú eru kaflaskil og framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun er lokið. Landsvirkjun þykir við hæfi að minnast tímamótanna með því að taka saman fróðleik í máli og myndum um merkilega framkvæmd. Þetta er ekki pólitísk átakasaga heldur miklu frekar ágrip af framkvæmdasögu, mismunandi viðhorfum og mannlífsmyndum.
Atli Rúnar Halldórsson, fyrrverandi fréttamaður og nú starfsmaður Athygli ehf., var fenginn til þess að sjá um söfnun og ritun efnis. Hann hefur allt frá árinu 2000 haft umsjón með vefsíðunni, www.karahnjukar.is, sem í fyrstu var kynningarvettvangur mats á umhverfisáhrifum og síðan frétta- og upplýsingaveita um gang mála við byggingu Kárahnjúkavirkjunar.
Landsvirkjun lagði áherslu á að ritið yrði fjölbreytt, upplýsandi, aðgengilegt og skemmtilegt aflestrar. Textinn er að miklu leyti byggður á samtölum við fólk sem tengdist framkvæmdunum beint eða óbeint eða hefur ákveðnar skoðanir á áhrifum virkjunarinnar. Hér er birtur fjöldi ljósmynda og fróðleiksmolar af ýmsu tagi. Efninu er ekki raðað í tímaröð enda ráð fyrir því gert að lesandinn geti borið niður nánast hvar sem er og lesið það sem honum þykir áhugavert. Framarlega í ritinu er að finna stuttan annál framkvæmdanna.
Viðhengi:
Orkubrunnur á Austurlandi
