Fréttasafn
Fjölmörg tilboð bárust í vinnubúðir og rofahús
Um miðjan september auglýsti Landsvirkjun eftir tilboðum í vinnubúðir og rofahús sem flutt verða frá virkjunarsvæði Kárahnjúkavirkjunar.
Margir sýndu vinnubúðunum áhuga og bárust fjölmörg tilboð í þær. Gengið var til samninga við þá sem áttu hagstæðustu tilboðin.
- 259 m² þjónustumiðstöð við Desjarárstíflu var seld Steindóri Jónssyni fyrir 2.100.000 kr.
- 111 m² skrifstofuhús keypti JPP ehf. á 810.00 kr.
- Óshóll ehf. festi kaup á 14 stökum svefnskúrum fyrir 1.394.400 kr.
Tilboðum í 297 m² svefnskála og rofahús var hafnað.
