Kárahnjúkastífla hlýtur alþjóðlega viðurkenningu
Á fyrstu alþjóðlegu ráðstefnunni um grjótstíflur (rockfill dams), sem haldin var í Chengdu í Kína dagana 18.-20. október sl., hlaut Kárahnjúkastífla viðurkenningu sem tímamótaverk (milestone project).
Fulltrúi Landsvirkjunar fór til Chengdu til að veita viðurkenningu þessari móttöku og gafst þá tækifæri til að lýsa hönnun og framkvæmdum við Kárahnjúkastíflu fyrir 450 ráðstefnugestum frá um 30 löndum.
Alls hlutu þrettán stíflur viðurkenningu, þar af fimm stíflur með steypta þéttikápu eins og Kárahnjúkastífla, en þetta er í fyrsta sinn sem slíkar viðurkenningar eru veittar. Stíflurnar voru valdar af sérfræðingum á þessu sviði frá ýmsum löndum en endanleg ákvörðun var í höndum skipuleggjenda ráðstefnunnar, sem voru kínverska og brasilísku landsnefndirnar um stórar stíflur (CHINCOLD og CBDB) með stuðningi alþjóðanefndarinnar um stórar stíflur (ICOLD).
Hönnun og bygging hinnar 198 m háu Kárahnjúkastíflu þykir hafa tekist sérstaklega vel, ekki síst með tilliti til þess að þrjár háar stíflur, sem byggðar voru úr basalt fyllingum á árunum 1998-2004, urðu allar fyrir skemmdum við fyrstu lónfyllingu. Það voru einkum tvö mikilvæg atriði sem voru öðru vísi við Kárahnjúkastíflu en þær þrjár stíflur sem urðu fyrir skemmdum, en það var annars vegar jöfn kornadreifing og góð þjöppun fyllingarefnisins, sem dregur úr sigi fyllingarinnar, og hins vegar eftirgefanlegir renningar milli steypuflekanna á ytra byrði stíflunnar, sem geta tekið við formbreytingum.
Ástæða þess að Kárahnjúkastífla þykir hafa markað tímamót er meðal annars sú að ýmis atriði í hönnun hennar hafa verið tekin upp í öðrum stíflum sem nú eru í byggingu, svo sem við Bakun stífluna í Malasíu, sem nú er á lokastigi byggingar, og við Nam Ngum 2 stífluna (182 m há) í Laos sem er einnig langt komin í byggingu. Þá hefur hönnun ýmissa hárra stíflna, sem nú eru í undirbúningi í Kína og víðar tekið mið af reynslu frá Kárahnjúkum.
Kárahnjúkastífla er ein af hæstu stíflum sinnar gerðar í heiminum og sú hæsta í Evrópu. Hærri stíflur þessarar gerðar eru nú:
- Campos Novos í Brasilíu, 202 m há, byggingu lauk 2004
- Shuibuya í Kína, 233 m há, hæst í heimi, byggingu lauk 2007
- Bakun í Malasíu, 205 m há, byggingu lokið, ekki verið fyllt í lón.
- La Yesca í Mexico, 205 m há, í byggingu.
