Landsvirkjun gerir samning við Auðlindaréttarstofnun Háskólans í Reykjavík
Samningurinn felur í sér að nemendur við Háskólann í Reykjavík geta stundað starfsnám hjá Landsvirkjun
Auðlindaréttarstofnun HR hefur gert samstarfssamninga við Landsvirkjun og Orkuveitu Reykjavíkur. Samningarnir fela það í sér að fyrirtækin bjóða starfsnám fyrir nemendur í meistaranámi við lagadeild HR.
Þar með eru þær stofnanir og fyrirtæki sem hafa gert samning við lagadeild HR um viðurkennt starfsnám orðin 29 talsins. Hluti af meistaranámi við deildina getur farið fram í viðurkenndu starfsnámi og nemandi fengið allt að sex einingar metnar á grundvelli samninga af þessu tagi. Það skilyrði er sett að nemandi vinni undir leiðsögn að viðfangsefnum sem eru til þess fallin að auka þekkingu og hæfni til að vinna að úrlausn lögfræðilegra verkefna.

Frá undirritun samningsins við Landsvirkjun; Jón Sveinsson, lögfræðingur Landsvirkjunar,
Kristín Haraldsdóttir, forstöðumaður Auðlindaréttarstofnunar HR
og Agnar Olsen, skrifstofustjóri og staðgengill forstjóra handsala samninginn.
