Fréttasafn

Hvernig hefur skilyrðum umhverfisráðherra vegna Kárahnjúkavirkjunar reitt af?

5.11.2009

Við mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar heimilaði umhverfisráðherra framkvæmdina að uppfylltum 20 skilyrðum. Nú er framkvæmdum lokið og því áhugavert að skoða hvernig Landsvirkjun uppfyllti skilyrði umhverfisráðherra.

Í júní 2001 lagði Landsvirkjun fram skýrslu um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar til Skipulagsstofnunar. Skipulagsstofnun lagðist gegn framkvæmdinni í ágúst 2001. Landsvirkjun kærði þann úrskurð til umhverfisráðherra sem féllst á hina fyrirhuguðu framkvæmd að uppfylltum 20 skilyrðum.

Frá því að framkvæmdir hófust starfaði samstarfsnefnd framkvæmdaaðila, sveitarstjórna og Umhverfisráðuneytis. Með henni starfaði einnig fulltrúi frá Orkustofnun fyrir hönd Iðnaðarráðuneytis. Þessi samráðsnefnd hefur fylgst með framkvæmdum og farið yfir aðgerðir.

Í úrskurði umhverfisráðherra eru í vissum tilvikum nefndir fagaðilar sem áskilið er að hafa samráð við við uppfyllingu einstakra skilyrða. Um annað geta gilt reynslulausnir sem hafa verið að mótast og taka mið af aðstæðum. Nefna má samráð við fulltrúa frá Umhverfisstofnun um ýmis artriði sem varða umgengni og frágang, einkum við efnisnám og haugsetningu.

Viðhengi:
Listi yfir skilyrðin 20 og upplýsingar um hvernig Landsvirkjun hefur leitast við að uppfylla þau.

 

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica