Fréttasafn

Kirkjunni að Stóra-Núpi færð gjöf

6.11.2009

Um síðustu helgi var haldið upp á 100 ára afmæli kirkjunnar að Stóra-Núpi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Af því tilefni var afhent gjafabréf frá Landsvirkjun og sóknarbörnum sem starfa eða hafa starfað við Búfellsstöð. Gjöfin er fólgin í því að kirkjan verður raflýst að utan.

Sunnudaginn 1. nóvember var haldin 100 ára afmælishátíð Stóra-Núpskirkju að viðstöddum biskupi Íslands, vígslubiskupi og sóknarbörnum. Við það tækifæri var jafnframt vígð stækkun á kirkjugarðinum. Benedikt Sigurðsson sem starfaði í Búrfellsstöð og var jafnframt í sóknarnefnd kirkjunnar um árabil afhenti Guðfinni Jakobssyni sóknarnefndarformanni gjöf Landsvirkjunar og sóknarbarna í Búrfelli. Hópur sóknarbarna frá Búrfelli ætlar að setja upp lýsingu utan á kirkjuna en Landsvirkjun stendur straum af kostnaði við búnaðinn sem til þarf.

Frá afmælishátíð í Stóra-Núpskirkju 1. nóv. 2009Frá afmælishátíð í Stóra-Núpskirkju 1. nóv. 2009

Frá afmælishátíð í Stóra-Núpskirkju 1. nóv. 2009Benedikt og Jóhanna í Haga

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica