Fréttasafn

Fjölmörg tilboð bárust í vinnubúðir

10.12.2009

11. október auglýsti Landsvirkjun eftir tilboðum í vinnubúðir sem fluttar verða frá virkjunarsvæði Kárahnjúkavirkjunar.

Vinnubúðirnar voru notaðar sem mötuneyti og gistiaðstaða. Einnig var sjúkrabílaskýli auglýst til sölu.

Margir sýndu vinnubúðunum áhuga og bárust fjölmörg tilboð í þær.

Gengið var til samninga við Protak ehf. sem átti hagstæðasta tilboðið kr. 23.300.000.-

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica