Fréttasafn
Vefmyndavél á Búrfelli
Myndavélinni er beint að Heklu og sýnir hún fjallið og nágrenni þess í beinni útsendingu.
Myndavélin er í fjarskiptaaðstöðu Landsvirkjunar og Fjarska í um 700 m hæð á Búrfelli. Þar fékk Ríkisútvarpið leyfi til að koma fyrir myndavél sem beint er að Heklu. Eldfjallið Hekla er tæplega 1500 m. hátt og gýs venjulega með áratuga millibili. Jarðfræðingar hafa greint landris við Heklu og búast má við eldgosi í fjallinu á næstunni.
Verkefnið sem tengist vefmyndavélinni er hluti af vöktun Heklu en gert er ráð fyrir að með myndavélinni megi sjá fyrir hugsalega leið hraunrennslis, gosmökks og annað sem geti skipt máli komi til eldgoss.
Myndavélin á Búrfelli á að standast mikið veðurálag. Vélar sem áður hafa verið settar upp reyndust ekki þola það mikla álag sem fylgir því að vera á íslenskum fjöllum. Vatn og óhreinindi komst inn í þær og vindálagið náði að losa um festingar og hrista þær lausar. Þess má geta að nýju vélarnar eru gasfylltar með 12 punda þrýstingi sem á að forða því að raki og óhreinindi komist inn í þær.
Það er öryggismálanefnd RÚV sem stendur fyrir uppsetningu vélanna í samstarfi við Almannavarnir, Fjarska, Landsvirkjun, Gagnaveitu Reykjavíkur og Mílu.
Nánari upplýsingar
Síða vefmyndavélarinnar: http://www.ruv.is/hekla/
