Landsvirkjun kaupir hlut Norðurorku í Þeistareykjum
Eftir kaupin á Landsvirkjun 64% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit.
Fyrir hlutinn eru greiddar 4,5 milljónir dollara að aflokinni áreiðanleikakönnun og 11 milljónir dollara til viðbótar þegar orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja ehf., þó ekki fyrr en að tíu árum liðnum.
Þeistareykir ehf. hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í því skyni. Boraðar hafa verið 6 djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands.
Háhitasvæðin á Norðausturlandi gegna lykilhlutverki í frekari uppbyggingu raforkuvinnslu á Íslandi. Norðurorka hefur með þátttöku sinni í Þeistareykjum ehf. gegnt mikilvægu hlutverki við undirbúning orkuvinnslu á svæðinu. Þessi kaup gera Landsvirkjun enn betur í stakk búna að vinna að frekari uppbyggingu á þessu svæði í tengslum við aðra orkukosti fyrirtækisins.

Á myndinni eru sitjandi frá vinstri þeir Franz Árnason forstjóri Norðurorku og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Að baki þeim eru frá vinstri Stefán Stefánsson og Jón Óttar Birgisson, hjá Saga Capital, Baldur Dýrfjörð, frá Norðurorku, Einar Kristjánsson, Jón Sveinsson og Stefán Pétursson hjá Landsvirkjun.
