Nýr vetnisbíll til Landsvirkjunar
Í dag fékk Landsvirkjun afhentan bíl af gerðinni Ford Focus sem knúinn er með efnarafala. Notkun bílsins hjá Landsvirkjun er liður í rannsóknaverkefni og þróun þeirrar hugmyndafræði að færa orkunotkun í samgöngum yfir í hreinar innlendar orkulindir.
Ford Focus með efnarafala er frábrugðinn þeim Toyota Prius vetnisbílunum sem fyrir eru hjá Landsvirkjun. Toyota Prius bílarnir brenna vetni í brunahólfi, en Ford Focus bílarnir eru í raun rafhlöðubílar þar sem vetnisefnarafali hleður rafgeyma er knýja rafmagnshreyfil.
Bíllinn sem Landsvirkjun hefur fengið afhentan er einn af 10 efnarafalabílum af gerðinni Ford Focus sem Íslensk NýOrka og Brimborg fengu frá Ford. Þessir bílar hafa verið notaðir áður en Ford valdi Ísland til að ná hámarksnotkun á þessari kynslóð efnarafalabíla sinna. Koma bílanna hingað til lands er mikil viðurkenning gagnvart rekstri vetnisstöðvar, sem er í höndum Skeljungs og eftirliti og viðhaldi bílanna sem Icelandic Hydrogen annast.
Með þessari viðbót í vetnisbílaflotann á Íslandi er floti vetnisbíla hér á landi orðinn sá stærsti sinnar gerðar í Evrópu eða alls 22.
Þá má benda á að sjö bílaframleiðendur hafa sent út sameiginlega yfirlýsingu um að undirbúa fjöldaframleiðslu á efnarafalabílum fyrir árið 2015.
Kjartan Viðarson, Ragnheiður Ólafsdóttir, Agnar Olsen og
Jón Ingvarsson við nýja vetnisbílinn í húsakynnum Brimborgar.
