Landsvirkjun þátttakandi í verkefni um vistheimt
Norrænt verkefni sem felst í að endurheimta vistkerfi sem hafa hnignað, raskast eða eyðst.
Tilgangur vistheimtar er ekki að skapa tilbúið vistkerfi heldur flýta þróun þess og beina henni í ákveðinn farveg. Endurheimt vistkerfa er langtímaferli sem lýtur sömu lögmálum og náttúrleg framvinda. Munurinn felst í því að með vistheimt er gripið inn í framvindu til að hjálpa vistkerfi yfir þröskulda sem mögulega gætu hindrað eða tafið náttúrulega framvindu þess.
Landsvirkjun hefur átt þátt í endurheimt vistkerfa um áratuga skeið, allt frá stofnun fyrirtæksisins til dagsins í dag en þau tengjast að mestu leyti virkjunum í Blöndu, Kárahnjúkum, Laxá, Þjórsá, Tungnaá og Sogi. Markmið vistheimtarverkefna hafa verið breytileg en Landsvikjun hefur leitast við að samræma vistfræðileg og samfélagsleg markmið.
Þeim verkefnum sem Landsvirkjun rekur og flokkast undir vistheimt eru kynnt á vefsíðum sem nálgast má undir flokknum Orka og umhverfi hér á vef Landsvirkjunar. Einnig er skýrsla Landsvirkjunar um vistheimt aðgengileg frá tengingunni hér að neðan.
Skoða vefsíður um verkefni Landsvirkjunar á sviði vistheimtar >>
Skýrsla Landsvirkjunar um vistheimt
