Landsvirkjun styrkir framlag Íslands á heimssýningunni í Sjanghæ
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra undirrituðu samning um aðkomu Landsvirkjunar að heimssýningunni EXPO 2010 síðastliðinn föstudag.
Við sama tækifæri undirrituðu Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins og Össur Skarphéðinsson, samstarfssamning.
Heimssýningin EXPO 2010 verður haldin í Sjanghæ í Kína frá 1. maí til 31. október 2010 undir yfirskriftinni “Betri borg – betra líf”. Ríkisstjórn Íslands ákvað í janúar 2008 að Ísland yrði þátttakandi í heimssýningunni. Með framlagi Íslands verður m.a. lögð áhersla á íslenskt atvinnulíf, sveitarfélög, endurnýjanlega orkugjafa, hátækni, hreinleika og sköpunarkraft. Þá verða skipulagðir sérstakir Íslandsdagar og viðskipta- og menningardagar með heimsóknum ráðherra.
Að lokinni undirritun samningsins fengu gestir að skoða frumútgáfu af íslenska sýningarskálanum.
Sjá nánar um þátttöku Íslands á EXPO 2010 á vefnum www.expo2010.is.

Grímur Sæmundsen, Össur Skarphéðinsson og Hörður Arnarson

Gestir virða fyrir sér kvikmyndina sem varpað er á alla fjóra veggi og loft sýningarskálans.
