Fréttasafn

Upphafsverk Búðarhálsvirkjunar boðin út

10.2.2010

Landsvirkjun auglýsir í vikunni eftir tilboðum í verkhluta upphafsframkvæmda Búðarhálsvirkjunar og gerir ráð fyrir að þeim verkum ljúki fyrir 1. desember 2010.

Takist samningar um orkusölu og fjármögnun virkjunarinnar verða helstu áfangar hennar boðnir út síðar á þessu ári.

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, kynnti útboðið á fjölsóttum fréttamannafundi í Landsvirkjun í dag og á vettvangi var einnig Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.

Hörður sagði að Landsvirkjun fjármagnaði sjálf útboðsverkin í sumar en erlent lánsfé þyrfti síðan að koma til í framhaldinu fyrir sjálfar virkjunarframkvæmdirnar. Hann kvaðst vera mjög bjartsýnn á að Landsvirkjun tækist að tryggja sér lánsfjármagn vegna Búðarhálsvirkjunar, bæði væri mikill áhugi á að taka þátt í fjárfestingum með Landsvirkjun og einnig lána fyrirtækinu fjármuni til framkvæmda.

Forsendur frekari útboða væru því háð að samningar tækjust um orkusölu og fjármögnun. Landsvirkjun ætti nú í viðræðum við Alcan um orkusölu frá Búðarhálsvirkjun og ræddi ekki við aðra á meðan. Ýmsir fleiri hefðu sýnt orkunni áhuga og þar á meðal fyrirtæki úr öðrum greinum en áliðnaði.

Hörður vildi ekki greina frekar frá möguleikum Landsvirkjunar í þessum efnum, enda myndi það rýra samningsstöðu fyrirtækisins.

Fréttatilkynning Landsvirkjunar um Búðarhálsvirkjun >>

 

Kynning Katrínar Júlíusdóttur og Harðar Arnarsonar á Búðarhálsvirkjun

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar,
kynna fyrirhugaðar framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun.

Senda grein


Útlit síðu:


Þetta vefsvæði byggir á Eplica