Styrkir úr orkurannsóknasjóði Landsvirkjunar afhentir
Í gær úthlutaði Landsvirkjun 58 milljónum króna í náms- og verkefnastyrki.
Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála. Markmið hans er að veita styrki til námsmanna, rannsóknarverkefna við háskóla og stofnanir þeirra, svo og til annarra stofnana og fyrirtækja. Jafnframt er markmið sjóðsins að gera fjárframlög Landsvirkjunar til rannsókna skilvirkari og sýnilegri og tryggja að þær rannsóknir sem sjóðurinn styrkir samrýmist umhverfisstefnu Landsvirkjunar.
Í samræmi við tilgang sjóðsins og markmið hans skiptist úthlutun í þrjá flokka:
A - Styrkir til nemenda í meistara- eða doktorsnámi
B - Rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála
C - Almennar virkjunarrannsóknir
Stjórn sjóðsins fer með úthlutanir í flokkum A og B að undangenginni auglýsingu eftir umsóknum en Landsvirkjun úthlutar styrkjum í flokki C án auglýsingar.
Í flokki B á sviði umhverfis- og orkumála bárust að þessu sinni 67 nýjar umsóknir og 14 framhaldsumsóknir með samanlögðum óskum um 220 m.kr. til verkefna á árinu 2010 en til ráðstöfunar voru 48 m.kr. Alls barst 41 umsókn í flokki A til meistara- og doktorsnáms en til ráðstöfunar í þeim flokki voru 10 m.kr. Þar sem umsóknir um styrki voru ríflega fjórum sinnum hærri en ráðstöfunarféð er ljóst að margar vel hæfar umsóknir gátu ekki fengið styrk að þessu sinni.
Nánari upplýsingar um nemendur og verkefni sem hlutu styrki >>

Styrkþegar, fulltrúar þeirra og stjórn orkurannsóknasjóðs Landsvirkjunar ásamt Herði Arnarsyni, forstjóra Landsvirkjunar og Bjarna Bjarnasyni, forstjóra LV Power.
