Landsvirkjun styrkti för tveggja ungmenna á One Young World ráðstefnuna í London
Um 1000 manns hvaðanæva að úr heiminum komu saman og ræddu um málefni sem snerta alla heimsbyggðina.
One Young World fundurinn var haldinn í fyrsta skipti í sögunni dagana 8.-10. febrúar síðastliðinn. Nýsköpunar- og frumkvöðlasetrið Innovit valdi þau Gunnar Hólmstein Guðmundsson, framkvæmdastjóra sprotafyrirtækisins Clara og Berglindi Ósk Bergsdóttur, nema í tölvunarfræði, til setu á fundinum. Landsvirkjun var á meðal þeirra fyrirtækja sem styrktu þau Berglindi og Gunnar Hólmstein til fararinnar.
Markmið One Young World fundarins er að stefna saman ungu fólki sem í framtíðinni mun hafa áhrif á það hvernig heiminum er stjórnað. Á fundinum er þátttakendum skipt niður í smærri hópa sem stjórnað er af fundarstjórum. Í þeim er fjallað um málefni líðandi stundar, t.d. heilsufarsmál, stjórnmál, trúmal, fjölmiðla, viðskipti og umhverfismál.
Ásamt ungu fólki frá flestöllum löndum heimsins sækja heimsþekktir leiðtogar fundinn á borð við Kofi Annan, Bob Geldof, Desmond Tutu og Oscar Morales.
Framlag Íslensku fulltrúanna á ráðstefnunni voru ræður um fjölmiðla og efnahagsmál. Gunnar Hólmsteinn flutti ræðu um jákvæð áhrif efnahagslægðarinnar á Íslandi í alþjóðlegu samhengi og Berglind fjallaði í sínu erindi um frelsi fjölmiðla.
Fundurinn var haldin í Excel Centre sem nýlega hýsti fund G20 ríkjanna. Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna setti fundinn og var opnunarhátíðin í beinni útsendingu hjá BBC World Service sem náði til um 60 milljón hlustenda. Fjöldi fulltrúa ungs fólks á fundinum er í hlutfalli við fólksfjölda hvers lands. Því á Kína flesta fulltrúa, þá Indland, Bandaríkin og svo önnur lönd. Ísland og önnur fámennari ríki eiga 2 fulltrúa.

Þau Berglind Ósk og Gunnar Hólmsteinn, fulltrúar Íslands á One World fundinum í London, á milli þeirra Kristínar Völu Ragnarsdóttur, forseta verk- og raunvísindasviðs HÍ og Andra Heiðars Kristinssonar, framkvæmdastjóri Innovit.
